Ragnheiður Runólfsdóttir

Ragnheiður Runólfsdóttir (f.

19. nóvember 1966) er íslensk sundkona og sundþjálfari. Árið 1991 var Ragnheiður valin Íþróttamaður ársins.

Ragnheiður er fædd og uppalin á Akranesi og er dóttir hjónanna Runólfs Óttars Hallfreðssonar og Ragnheiðar Gísladóttur sem bæði eru látin. Ragnheiður byrjaði ung að æfa sund á Akranesi en hélt síðar til náms í Alabama í Bandaríkjunum og útskrifaðist sem íþróttalífeðlisfræðingur.

Ragnheiður var útnefnd Íþróttamaður ársins árið 1991 en þá þegar hafði hún sett um 200 Íslandsmet í sundgreinum. Hún var önnur konan til að hljóta titilinn. Á ferli sínum keppti Ragnheiður tvisvar sinnum á Ólympíuleikum en hún tók þátt í leikunum í Seúl í Suður-Kóreu árið 1988 og í Barcelona á Spáni árið 1992 en lauk keppnisferli sínum að þeim leikum loknum.

Eftir að keppnisferli hennar lauk hefur hún starfað við sundþjálfun, fyrst í Keflavík, Mosfellsbæ og á Akranesi. Frá 2011-2018 var Ragnheiður yfirþjálfari hjá sunddeild Óðins á Akureyri en árið 2019 hóf hún störf sem yfirþjálfari sundfélagsins SO2 í Gautaborg í Svíþjóð.

Tilvísanir

Tags:

19. nóvember1966Íþróttamaður ársins

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Flokkur fólksinsSögutímiSamningur Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndunGrágásEgill Skalla-GrímssonRagnarökAusturlandÞorsteinn Már BaldvinssonÖræfasveitSnorra-EddaÁbendingarfornafnOsturFreyjaArabíuskaginnBrennu-Njáls sagaShrek 2Bandamenn (seinni heimsstyrjöldin)Auður djúpúðga KetilsdóttirNoregurNeysluhyggjaBúrhvalurÁstandiðStuðlabandiðAlnæmiÝsaLjóstillífunListi yfir risaeðlurBlóðbergListi yfir fugla ÍslandsMarðarættMúmíurnar í GuanajuatoFæreyjarKristnitakan á ÍslandiEvrópaFinnlandTyrkjarániðKúariðaGasstöð ReykjavíkurLandhelgisgæsla ÍslandsRaufarhöfnFornaldarheimspekiAlex FergusonWayback MachineSeyðisfjörðurRæðar tölurElliðaeySpánnSnæfellsjökullRagnar loðbrókU2Boðorðin tíu24. marsGeðklofiFjalla-EyvindurFulltrúalýðræðiÓðinn (mannsnafn)Úranus (reikistjarna)LundiFjölnotendanetleikurKlórSkotfærinSóley TómasdóttirSkoll og HatiHamsturÁsbirningarListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969HornbjargÚsbekistanÍslenska stafrófiðGiordano BrunoKoltvísýringurÍslensk mannanöfn eftir notkun🡆 More