Ouagadougou (borið fram u.þ.b.
"úagadúgú") er höfuðborg Búrkína Fasó. Ouagadougou er stærsta borg landsins, með um milljón íbúa. Nafn borgarinnar er oft stytt í Ouaga. Borgin er staðsett nokkurn veginn í miðju landsins.
Borginni er skipt í 30 hluta. Helstu svæði innan borgarinnar eru Gounghin, Kamsaoghin, Koulouba, Moemmin, Niogsin, Paspanga, Peuloghin og Tiendpalogo.
Frá borginni er hægt að komast með lest til borgarinnar Kaya í norðurhluta landsins og Abidjan á Fílabeinsströndinni. Einnig liggur hraðbraut til Níamey í Níger.
Háskóli Ouagadougou var fyrsti háskóli landsins.
Hin árlega kvikmyndahátíð FESPACO African fer fram í borginni annað hvert ár. Einn af stærstu mörkuðum Vestur-Afríku, Ouagadougou Grand Market, er einnig í borginni.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ouagadougou, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.