Oddur Björnsson (18.
júlí">18. júlí 1865 – 5. júlí 1945) var íslenskur prentari sem starfaði fyrst í Kaupmannahöfn og síðar á Akureyri þar sem hann rak Prentsmiðju Odds Björnssonar. Hann var gerður að heiðursborgara Akureyrarbæjar 1935.
Oddur lærði prentiðn í Ísafoldarprentsmiðju í Reykjavík og hélt síðan til framhaldsnáms í Kaupmannahöfn. Þar hóf hann útgáfu á ritröðinni Bókasafn alþýðu þar sem meðal annars komu út Sögur herlæknisins eftir Zacharias Topelius í þýðingu Matthíasar Jochumssonar og Þyrnar eftir Þorstein Erlingsson. Í Kaupmannahöfn æfði hann hnefaleika og kenndi Jóhannesi Jósefssyni íþróttina eftir að hann fluttist til Akureyrar.
Árið 1901 flutti hann til Akureyrar og stofnaði þar prentsmiðju. Þar prentaði gaf meðal annars út þjóðsagnasafn árið 1906. Hann ánafnaði Akureyrarbæ bókasafn sitt eftir dauða sinn.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Oddur Björnsson (f. 1865), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.