Neskaupstaður: Bær í Fjarðabyggð á Austurlandi

Neskaupstaður er 1.469 manna (2019) bær við Norðfjörð á Austfjörðum og sá fjölmennasti í sveitarfélaginu Fjarðabyggð.

Neskaupstaður: Bær í Fjarðabyggð á Austurlandi
Neskaupstaður.
Neskaupstaður: Bær í Fjarðabyggð á Austurlandi
Norðfjörður.
Neskaupstaður

Neskaupstaður

Neskaupstaður: Bær í Fjarðabyggð á Austurlandi

Bærinn var gerður að sérstökum hreppi, Neshreppi, árið 1913 en hafði fram að því heyrt undir Norðfjarðarhrepp. Neshreppur fékk kaupstaðarréttindi 1. janúar 1929 og hét eftir það Neskaupstaður. Norðfjarðarhreppur sameinaðist Neskaupstað á ný 11. júní 1994, að þessu sinni undir merkjum Neskaupstaðar. Hinn 7. júní 1998 sameinaðist Neskaupstaður Eskifjarðarkaupstað og Reyðarfjarðarhreppi undir nafninu Fjarðabyggð.

Bæjarstæðið er merkilegt fyrir þær sakir að vera mjög langt, það er bærinn liggur meðfram sjónum og nær um það bil 100 metra upp í hlíðina fyrir ofan á 6 km löngum kafla.

Í bænum er Boltafélag Norðfjarðar, íþróttafélagið Þróttur sem hefur náð hvað bestum árangri í blaki. Fjarðabyggð er með sameiginlegt lið í 2. deild karla í knattspyrnu. Þar er einnig golfklúbburinn GN (Golfklúbbur Norðfjarðar). Klúbburinn starfrækir 9 holu golfvöll, Grænanesvöll. Völlurinn er á Grænanesbökkum við Norðfjarðará. Fjórðungssjúkrahúsið í bænum sinnir Austurlandi.

Tengt efni

Eitt og annað

  • Hverja verslunarmannahelgi er tónlistarhátíðin Neistaflug haldin í Neskaupstað. Í byrjun júlí er haldin þungarokkshátíðin Eistnaflug.
  • Í eina tíð var Neskaupstaður stundum nefndur Litla-Moskva vegna þess að Alþýðubandalagið hafði mjög lengi hreinan meirihluta í bæjarstjórn.
  • Síldarvinnsla Neskaupstaðar er stærsta fyrirtækið í bænum.
  • Seltulauf, sjaldgæf fléttutegund í útrýmingarhættu á Íslandi, vex við Neskaupsstað. Þetta er einn af örfáum fundarstöðum tegundarinnar á Íslandi.
Neskaupstaður: Bær í Fjarðabyggð á Austurlandi 
Víðmynd.

Tilvísanir

Tags:

2019AustfirðirFjarðabyggðNorðfjörður

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HeimsálfaSeðlabanki ÍslandsRúmeníaJón GnarrPetro PorosjenkoEggjastokkarÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnuRúnirGíraffiBesta deild karlaEvraC++EilífðarhyggjaEignarfallsflóttiÓrangútanHafnarfjörðurDyrfjöllForsetakosningar á Íslandi1944Ólafur Grímur BjörnssonXStóridómurHornbjargKváradagurÍslandsklukkanHvannadalshnjúkurIngólfur ArnarsonSankti PétursborgSnorra-EddaVeldi (stærðfræði)SkapahárAdeleSkákTilgáta CollatzLína langsokkurJörundur hundadagakonungurMeðaltalÞórshöfn (Færeyjum)Michael JacksonSvíþjóðHraun1568Sundlaugar og laugar á ÍslandiBMúmínálfarnirHæstiréttur ÍslandsAusturlandKonungasögurWayback MachineÞjóðsagaFyrsta málfræðiritgerðin1. öldinLaddiPGoogleStálEnglandKrummi svaf í klettagjáEddukvæðiEvrópusambandiðÁratugurListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurRjúpaTaílandListi yfir íslensk póstnúmerKnattspyrnaFullveldiJörðinAuðunn rauðiRamadanHlaupárHelgafellssveitTvíkynhneigðPólska karlalandsliðið í knattspyrnuFrumbyggjar AmeríkuÍslenska🡆 More