Mauricio Macri: Forseti Argentínu

Mauricio Macri (f.

8. febrúar 1959) er argentínskur stjórnmálamaður sem var forseti Argentínu frá árinu 2015 til ársins 2019. Hann er fyrrum byggingaverkfræðingur og vann fyrstu tveggja umferða forsetakosningarnar í sögu Argentínu árið 2015, en tveggja umferða kerfið hafði verið tekið upp árið 1994. Hann er fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Argentínu frá árinu 1916 sem hvorki er Perónisti né úr Róttæka borgarabandalaginu. Macri hafði verið borgarstjóri Búenos Aíres frá 2007 til 2015 og var fulltrúi borgarinnar á neðri deild argentínska þingsins frá 2005 til 2007. Helsta áherslumál Macri í forsetaembætti var að laga Argentínu að alþjóðlegum fjármálamörkuðum á ný í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Mauricio Macri
Mauricio Macri: Forseti Argentínu
Forseti Argentínu
Í embætti
10. desember 2015 – 10. desember 2019
VaraforsetiGabriela Michetti
ForveriCristina Fernández de Kirchner
EftirmaðurAlberto Fernández
Persónulegar upplýsingar
Fæddur8. febrúar 1959 (1959-02-08) (65 ára)
Tandil, Búenos Aíres, Argentínu
StjórnmálaflokkurPropuesta Republicana
MakiYvonne Bordeu (1981–1991)
Isabel Menditeguy (1994–2005)
Juliana Awada (2010–)
Börn4
HáskóliKaþólski háskólinn í Argentínu
Columbia-háskóli
StarfByggingaverkfræðingur, athafnamaður, stjórnmálamaður
UndirskriftMauricio Macri: Forseti Argentínu

Macri fæddist í Tandil í Búenos Aíres-sýslu. Faðir hans var Francesco Macri, kunnur ítalskur athafnamaður í iðn- og byggingageirunum. Mauricio ólst upp á yfirstéttarheimili og hlaut bakkalársgráðu í byggingaverkfræði úr Kaþólska háskólanum í Argentínu. Hann nam síðar við viðskiptadeild Columbia-háskóla í New York. Macri varð forseti knattspyrnuliðsins Boca Juniors árið 1995. Árið 2005 stofnaði hann miðhægriflokkinn Propuesta Republicana eða PRO.

Macri var orðaður við forsetaframboð árið 2011 en hann ákvað að bjóða sig frekar fram til endurkjörs í borgarstjórn Búenos Aíres. Hann hlaut um 47 prósent atkvæða í fyrri umferð borgarstjórnarkosninganna og vann endurkjör í seinni umferðinni gegn Daniel Filmus. Þann 22. nóvember árið 2015 bauð Macri sig fram til forseta og lenti í jafntefli í fyrri umferð gegn perónistanum Daniel Scioli. Í seinni umferðinni vann Macri nauman sigur með 51,34 prósentum atkvæða og var svarinn í embætti þann 10. desember.

Árið 2016 nefndi bandaríska tímaritið Time Macri einn af 100 voldugustu einstaklingum í heimi og voldugasta forseta í Rómönsku Ameríku.

Macri tapaði endurkjöri árið 2019 fyrir mótframbjóðanda sínum, perónistanum Alberto Fernández.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Cristina Fernández de Kirchner
Forseti Argentínu
(10. desember 201510. desember 2019)
Eftirmaður:
Alberto Fernández


Tags:

AlþjóðagjaldeyrissjóðurinnArgentínaByggingaverkfræðiBúenos AíresForseti ArgentínuPerónismi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

KváradagurTata NanoEggert PéturssonJóhannes Sveinsson KjarvalSíberíaSólkerfiðDiljá (tónlistarkona)TyrkjarániðVolaða landWayback MachineÍslenski hesturinnAlmennt brotTónstigiVenusÞingholtsstrætiÞingvellirNígeríaAlkanarKrummi svaf í klettagjáForseti ÍslandsBúddismiPáll ÓskarSiðaskiptin1995ÞýskaSeyðisfjörðurBjörg Caritas ÞorlákssonHitabeltiGunnar HelgasonPóstmódernismiNýja-SjálandMargrét FrímannsdóttirBandaríkinKríaBorgaraleg réttindiPáskarBragfræðiVatnsaflsvirkjunKatrín JakobsdóttirUppstigningardagurManchesterListi yfir persónur í NjáluAuður djúpúðga KetilsdóttirLottóSkuldabréfÍbúar á ÍslandiHryggsúlaÁsgeir Ásgeirsson1989Sendiráð ÍslandsCharles DarwinSnorri SturlusonDaði Freyr PéturssonJohn LennonErróHáhyrningur18 KonurStofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðumEnglar alheimsinsSjálfstætt fólkEiffelturninnSnæfellsjökullÞingvallavatnÖxulveldinJóhanna SigurðardóttirKrít (eyja)Guðlaugur Þór ÞórðarsonFrumtala9HandveðFornnorrænaJeffrey DahmerAlbert EinsteinÓlafur SkúlasonMoll25. mars5. MósebókSigurjón Birgir Sigurðsson🡆 More