Karlalandslið Serbíu og Svartfjallalands í knattspyrnu var fulltrúi Serbíu og Svartfjallalands á árunum 1992 til 2006 þegar ríkjasambandið var leyst upp og serbneska og svartfellska landsliðið voru stofnsett.
Besti árangur liðsins var fjórðungsúrslit í Evrópukeppni. Frá 1992-2003 lék liðið undir nafni Sambandslýðveldisins Júgóslavíu.
Íþróttasamband | (Serbneska: Cрбија и Црна Гора) Knattspyrnusamband Serbíu og Svartfjallalands | ||
---|---|---|---|
Álfusamband | UEFA | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
0-2 gegn Brasilíu, 23. des., 1994 | |||
Stærsti sigur | |||
8-1 gegn Færeyjum, 6. okt. 1996 | |||
Mesta tap | |||
0-6 gegn Argentínu, 16. júní, 2006 |
Sambandsríkið Júgóslavía var stofnað þann 28. apríl 1992, en vegna alþjóðlegs samskiptabanns á íþróttasviðinu gat landslið hins nýja ríkis ekki keppt sinn fyrsta leik fyrr en á Þorláksmessu árið 1994 þegar liðið tapaði 2:0 fyrir Brasilíu í Porto Alegre. Vegna bannsins gat liðið ekki tekið þátt í forkeppni HM 1994 og það sama gilti um EM 1996.
Serbía og Svartfjallaland höfnuðu í öðru sæti síns forriðils fyrir HM 1998 á eftir Spánverjum. Það þýddi umspilsleiki gegn Ungverjum sem unnust ótrúlega auðveldlega, 12:1 samanlagt.
Fyrsta leiknum á mótinu í Frakklandi lauk með 1:0 sigri á liði Írans. Þessu næst mættu Serbar og Svartfellingar Þjóðverjum og náðu tveggja marka forystu en þýska liðið náði að jafna 2:2. Í lokaleik riðilsins mætti Serbía og Svartfjallaland liði Bandaríkjanna og náði forystunni í byrjun leiks. Fleiri mörk fylgdu ekki í kjölfarið og mátti liðið því sætta sig við annað sætið í riðlinum.
Mótherjarnir í 16-liða úrslitum voru Hollendingar. Allt stefndi í framlengingu þar sem staðan var 1:1 en á þriðju mínútu uppbótartíma skoraði Edgar Davids sigurmark Niðurlendinga sem komust þar með áfram í fjórðungsúrslitin.
Serbía og Svartfjallaland dróst í forriðil EM 2000 í Hollandi og Belgíu ásamt með Króötum. Viðureignirnar voru pólitískt merkingarþrungnar og lauk báðum með jafntefli. Króatar sátu þó eftir í riðlinum á meðan Serbía og Svartfjallaland hrepptu toppsætið.
Riðill Serba og Svartfellinga fór fram í Hollandi og voru andstæðingarnir í fyrsta leik annað gamalt sambandslýðveldi, Slóvenía. Slóvenska liðið, sem fyrirfram var talið það langlakasta í keppninni, náði 3:0 forystu eftir um klukkutíma leik. Úrslitin virtust ráðin en á sex mínútna tímabili skoraði Serbía og Svartfjallaland þrívegis og urðu lokatölur 3:3 jafntefli.
Næstu mótherjar voru Norðmenn. Savo Milošević skoraði eina markið snemma leiks og Serbar og Svartfellingar voru komnir í kjörstöðu í riðlinum. Lokaleikurinn gegn Spáni varð æsispennandi. Serbía og Svartfjallaland náði 3:2 forystu þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og virtist ætla að tryggja sér toppsætið og fella um leið spænska liðið úr keppni. Tvö spænsk mörk á fimmtu og sjöundu mínútu uppbótartíma sneru taflinu við. Heppileg úrslit í viðureign Noregs og Slóveníu tryggðu þó Serbum og Svartfellingum sætið í fjórðungsúrslitunum. Þegar þangað var komið sá liðið aldrei til sólar og tapaði 6:1 fyrir Hollendingum, þar sem Milošević náði að klóra í bakkann í blálokin með eina markinu.
Forkeppnir næstu tveggja stórmóta, HM 2002 og EM 2004 ollu báðar vonbrigðum og Serbía og Svartfjallaland sátu heima. Liðið var hins vegar á meðal þátttakenda á HM 2006 í Þýskalandi.
Óhætt var að tala um martraðardrátt í keppninni enda var riðill Serbíu og Svartfjallalands kallaður „dauðariðillinn“. Sem fyrr reyndust Hollendingar illir viðureignar og unnu 1:0 sigur í fyrsta leik og möguleikarnir á að komast í næstu umferð orðnir takmarkaðir. Í næsta leik hrundi leikur Serbíu og Svartfjallalands til grunna þegar Argentínumenn unnu auðveldan 6:0 sigur þar sem Lionel Messi skoraði sitt fyrsta HM-mark.
Svo virtist sem Serbum og Svartfellingum ætlaði að takast að bjarga ærunni í lokaleik sínum gegn liði Fílabeinsstrandarinnar og voru komnir í 2:0 eftir tuttugu mínútur. Afríkumennirnir komu hins vegar kröftuglega til baka og unnu 3:2 sigur. Þetta reyndist síðasti landsleikur Serbíu og Svartfjallalands en skömmu síðar var ríkjasambandið leyst upp og lönin tvö fóru að spila hvort undir sínum merkjum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Karlalandslið Serbíu og Svartfjallalands í knattspyrnu, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.