Kabýlía (amazigh: : ⵜⴰⵎⵓⵔⵜ ⵏ ⵉⵇⴱⴰⵢⵍⵉⵢⴻⵏ, Tamurt n Iqvayliyen) er sögulegt hérað í Alsír, rétt austan við Algeirsborg.
Það er í Atlasfjöllum við strönd Miðjarðarhafs og nær yfir nokkur héruð í Alsír; Tizi Ouzou-hérað, Béjaïa-hérað, Bouïra-hérað, Boumerdès-hérað. Gouraya-þjóðgarðurinn og Djurdjura-þjóðgarðurinn eru í Kabýlíu. Íbúar Kabýlíu eiga langa sögu andspyrnu gegn ríkjandi stjórnvöldum í landinu frá tímum Rómaveldis og síðar Tyrkjaveldis. Héraðið var með þeim síðustu sem gáfust upp fyrir Frakkaveldi á 19. öld. Árið 2001 var Sjálfstjórnarhreyfing Kabýlíu stofnuð sem berst fyrir sjálfstjórn í héraðinu.
Kabýlía skiptist í tvennt við árdal Soummam. Vestan megin er Kabýlía meiri en austan megin Kabýlía minni. Á árnýöld voru Konungsríkið Kuku vestan megin og Konungsríkið Ait Abbas austan megin. Héraðið var fyrst gert að einu stjórnsýsluumdæmi í Sjálfstæðisstríði Alsír 1954 til 1962.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kabýlía, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.