Kíví eru ófleygir fuglar sem eru landlægir á Nýja-Sjálandi og eru af ættkvísl Apteryx og ætt Apterygidae.
Þeir eru þjóðartákn landsins og eru íbúar þess stundum kallaðir kíví.
Kíví-fuglar eru af stærð kjúklings. Þeir eru yfirleitt varkárir og á ferli á nóttunni. Lyktarskynið er öflugt og eru þeir einu fuglarnir með nasir á enda goggsins. Goggurinn kemur sér vel við öflun fæðu en helsta fæðan er: Lítil dýr og ormar, fræ og ávextir.
Samband para getur varað í 20 ár og er vanalega eitt egg sem orpið er. Egg Kíví-fugla eru stærstu egg fugla samanborið við líkamsstærð. Kívíum stendur ógn af innfluttum rándýrum.
Fyrirmynd greinarinnar var „Kiwi“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 27. feb. 2017.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kíví (fugl), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.