námskeið/Breytingar

Ef undanskildar eru nokkrar verndaðar síður, þá hafa allar síður á Wikipedia „Breyta“ flipa sem hægt er að smella á og breyta innihaldi síðunnar.

Inngangur   Breytingar   Textavinnsla   Tenglar   Heimildaskráning   Spjallsíður   Nokkur mikilvæg atriði   Skráning   Lokaorð    
námskeið/Breytingar
Smelltu á „Breyta“ flipann til þess að breyta síðunni.

Þetta er grundvallareinkenni Wikipediu og veitir þér aðgang til þess að leiðrétta villur og bæta við staðreyndum. Ef þú ætlar að bæta við upplýsingum í grein þá skalt þú vinsamlegast passa að vísa til heimilda. Fullyrðingar sem ekki eru studdar heimildum kunna að verða fjarlægðar. Best er að huga að því strax í upphafi og setja ekki inn neinar staðreyndar án tilvísunar til heimilda.

Þú getur núna æft þig í að breyta síðum með því að fara í sandkassann og smella þar á „Breyta“ flipann. Þá opnast breytingargluggi sem inniheldur texta síðunnar. Þú getur prófað að skrifa eitthvað skemmtilegt eða áhugavert, breytt textanum sem er fyrir eða eytt honum. Þegar þú vilt sjá afraksturinn smellir þú á „gefa út breytingar“ og þú færð upp breytta síðu!

Forskoða

Í leiðbeiningunum hér að ofan var tveimur skrefum sleppt sem þú ættir að temja þér áður en þú ferð að breyta greinum eða síðum á alfræðiritinu. Smelltu núna á „Breyta“ og settu inn einhvern texta, eins og áður, en áður en þú vistar skaltu fylgja eftirfarandi aukaskrefum.

Ritillinn undir Breyta sýnir þér hvernig breytingin mun líta út. Haltu áfram að breyta þangað til að greinin lítur út eins og þú vildir. Prófaðu þig áfram með útlit textans. Með þessu er komist hjá því að vista síðuna oft og flækja þannig breytingaskrá síðunnar að óþörfu.

Ef þú notar „Breyta frumkóða“ þá þarft þú að ýta á „forskoða” hnappinn til að sjá hvernig breytingin mun líta út.

Breytingarágrip

námskeið/Breytingar
Gefa út breytingar“ hnappurinn vistar breytingarnar þínar.

Þegar þú ýtir á "Gefa út breytingar" vinsamlegast fylltu út breytingarágripið. Þetta þurfa ekki að vera nema örfá orð, jafnvel bara eitt.

Í fyrsta lagi er það talin góð framkoma á Wikipediu að útskýra breytinguna í stuttu máli í reitnum „Breytingarágrip“ sem þú sérð ávallt fyrir neðan breytingargluggann sjálfan. Til dæmis ef þú leiðréttir stafsetningarvillu þá getur þú skrifað „stafsetning“ í breytingarágripið. Ef breytingin þín er smávægileg eins og t.d. leiðrétting á stafsetningar eða innsláttarvillu þá ættir þú líka að haka við kassann þar sem segir „Þetta er minniháttar breyting“ (það er þó aðeins í boði ef þú ert skráð(ur) inn á vefinn). Breytingunni sem þú gerir í sandkassanum í tilraunarskyni gæti t.d. fylgt breytingarágripið „prufa“.

Vista síðuna

Ertu búin(n) að skrifa breytingarágrip og forskoða breytingar þínar? Þá er ekkert því til fyristöðu að gefa út breytingar og halda áfram!


Prófaðu þig áfram í sandkassanum
Áfram í næsta kafla um textavinnslu

Tags:

námskeið/Breytingar Forskoðanámskeið/Breytingar Breytingarágripnámskeið/Breytingar Vista síðunanámskeið/BreytingarHjálp:HeimildaskráningWikipediaWikipedia:Verndun

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Andri Lucas GuðjohnsenÞGuðmundur Franklín JónssonListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurNorræn goðafræðiPerúEldgosaannáll ÍslandsHelErwin HelmchenFrumtalaDrangajökullABBAHrafninn flýgurDalvíkKaíróSankti PétursborgListi yfir morð á Íslandi frá 2000FanganýlendaBlýÍbúar á ÍslandiVíetnamstríðiðHarpa (mánuður)SvartidauðiHávamálSamskiptakenningarHandboltiTanganjikaVilhelm Anton JónssonMúsíktilraunirListi yfir íslensk póstnúmerSurtseySetningafræðiÚkraínaAkureyriFæreyjarDiljá (tónlistarkona)LaosRisaeðlurMuggurNýsteinöldHollandAndreas BrehmeRúmmálSexUppstigningardagurÍrlandBorgLögbundnir frídagar á ÍslandiGísla saga SúrssonarHafréttarsáttmáli Sameinuðu þjóðannaTröllTímiÓháði söfnuðurinnÓlivínEiffelturninnAbujaRostungurTyrkland1973OrkaNýfrjálshyggjaGuðrún frá LundiSkólakerfið á ÍslandiOlympique de MarseilleWalthéryÁrni MagnússonBjörgólfur Thor BjörgólfssonSkuldabréfÍslenska stafrófiðMadrídHáskóli ÍslandsBjór á ÍslandiKristniLýðræðiVerbúðinSeinni heimsstyrjöldinMartin Luther King, Jr.🡆 More