Hammarby IF er sænskt knattspyrnulið sem staðsett er í Johanneshov, sunnan við Södermalm í Stokkhólmi.
Í Svíþjóð er oft átt við liðið sem Bajen, sem er stytting á enskum framburði nafns liðsins. Árið 1915 tók Hammarby í fyrsta skipti þátt í Sænsku úrvalsdeildinni. Eftir að hafa byrjað vel á fyrstu árunum eftir 1920 fór liðið niður um deildir og gekk illa. Það var ekki fyrr enn árið 1954 sem félagið komst aftur upp í úrvalsdeildina.
Hammarby Idrottsförening Fotbollsförening (HIF FF) | |||
Fullt nafn | Hammarby Idrottsförening Fotbollsförening (HIF FF) | ||
Gælunafn/nöfn | Bajen | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Hammarby | ||
Stofnað | 1915 | ||
Leikvöllur | Tele2 Arena, Stokkhólmi | ||
Stærð | 30.000 | ||
Stjórnarformaður | Richard von Yxkull | ||
Knattspyrnustjóri | Stefan Billborn | ||
Deild | Allsvenskan | ||
2023 | 7. | ||
|
Síðan þá hefur Hammarby spilað í úrvalsdeildinni eða komist upp í Allsvenskan öll sumur að fjórum árum undanteknum. Hammarby lék í úrvalsdeildinni allt frá árinu 1998 til ársins 2009. Þegar félagið féll aftur niður í Superettan. 2001 tókst Hammarby IF að vinna úrvalsdeildina í sitt fyrsta og eina skipti.
Gunnar Þór Gunnarsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Heiðar Geir Júlíusson, Arnór Smárason, Birkir Már Sævarsson og Ögmundur Kristinsson hafa spilað með liðinu. Nú er Viðar Örn Kjartansson með því.
1. janúar árið 2002 varð Hammarby IF 51% í eigu fyrirtækisins Hammarby IF Fotbollförening og 49% í eigu bandaríska hluthafans Anschutz Entertainment Group. Liðið deilir heimavelli með Djurgårdens IF sem teljast erkifjendur þeirra.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hammarby IF, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.