Hagamús (fræðiheiti: Apodemus sylvaticus) er músategund sem er algeng um svo til alla Evrópu og er einnig í Norður-Afríku.
Hún finnst um sunnanverð Norðurlönd og á Íslandi, en þangað hefur hún borist með mönnum þegar á landnámsöld. Hún er hins vegar ekki í Finnlandi og Rússlandi, þar koma aðrar músategundir í stað hennar. Hún finnst heldur ekki á Færeyjum eða á Grænlandi.
Hagamús | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Apodemus sylvaticus (Linnaeus, 1758) |
Hagamýs eru litlar (oftast um 9 cm að lengd án hala og 25-35 g að þyngd), með kringlótt eyru og langan hala. Þær eru mjög líkar húsamúsum (Mus musculus) í útliti nema hvað húsamúsin er grárri, grábrún eða gulbrún að ofan en ljósari á kviðnum, og augun eru stærri. Á ýmsum Evrópumálum, þ. á m. á latnesku, er þessi tegund kölluð skógarmús, þótt tegundin þrífist í raun betur í högum, görðum og mólendi en í skógi.
Hagamýs lifa aðallega á berjum, fræjum og skordýrum, svo og á ýmsum úrgangi og hræjum, og eru mest á ferli að næturlagi. Þær grafa sér holur í móa og moldarjarðveg eða búa um sig undir steinum og gera sér þar forðabúr og hreiður en þegar hart er í ári leita þær oft í húsaskjól og eru mjög duglegar að klifra. Á Íslandi eru þær reyndar algengar í húsum allt árið.
Hagamýs tímgast ört en það ræðst þó mjög af tíðarfari og aðstæðum. Meðgöngutími þeirra er 25-26 dagar og meðalfjöldi músarunga er um 5. Þeir fæðast hárlausir og blindir en vaxa hratt; mýsnar verða kynþroska um tveggja mánaða gamlar og nokkrar kynslóðir geta því fæðst á einu ári. Þar sem hlýtt er í veðri og fæða næg geta þær tímgast mestallt árið en í kaldari löndum tímgast þær aðeins á sumrin, jafnvel aðeins í júní og júlí. Mýsnar lifa sjaldan lengur en eitt ár.
Á Íslandi eru helstu óvinir hagamúsarinnar refir, minkar, ýmsir fuglar, svo sem uglur og fálkar, og svo auðvitað kettir.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hagamús, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.