Giljaskóli er grunnskóli, staðsettur í Giljahverfi á Akureyri.
Þar voru 422 nemendur árið 2021. Skólinn var stofnaður 1995 en fullbyggður 2002.
Í Giljaskóla voru árið 2021 voru 422 nemendur í 1.—10. bekk við skólann. Það ár voru 66.7 stöðugildi starfsmanna við skólann, þar af um 37.7 kennarastöðugildi .
Giljaskóli hóf starfsemi í húsnæði leikskólans Kiðagils haustið 1995 með þrjár kennslustofur. Starfsmannarými var í fyrstu sameiginlegt leikskólanum. Á öðru ári var bætt við lausri kennslustofu. Að auki var sumarbústaður nýttur fyrir skrifstofu skólastjórnenda og sem sérkennslurými.
Árið 1998 var flutt inn nýja skólabyggingu, þriggja hæða kennslustofuálmu, stjórnunarrými og skólavistun. Síðar var bætt við sérgreinastofum. Fullbyggður árið 2002 var skólinn um 4.719 fermetrar auk íþróttahúss. Heildarflatamál lóðar er 16.493 fermetrar.
Giljaskóli er staðsettur við Kiðagil í Giljahverfi vestan Glerár á Akureyri. Í sveitarfélaginu eru grunnskólarnir ekki hverfaskiptir nema að því leyti að hvert barn á rétt til skólagöngu í sínum hverfisskóla.
Skólastjóri Giljaskóla (2023) er Elías Gunnar Þorbjörnsson. Deildarstjórar eru þær Aðalheiður Skúladóttir og Thelma Baldursdóttir. Arna Tryggvadóttir er deildarstjóri sérdeildar.
Í ytra mati Menntamálastofnunar sem framkvæmt var árið 2019 þykja lýðræðisleg vinnubrögð einkenna samstarfið í skólanum. Innra mat er álitið mikilvægt og sjálfsagður hluti af skólastarfinu. Margþætt þróunarstarf fer fram í Giljaskóla og hefur skólinn sérstakt upplýsingatækniteymi.
Giljaskóli er einsetinn skóli sem býður nám í 1.—10. bekk. Menntastefnan byggir á aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2011 sem reist er á sex grunnþáttum menntunar sem eru leiðarljós við námskrárgerðina: Læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Í skólastarfinu er lögð áhersla á að efla almenna námshæfni í gegnum þverfagleg og skapandi verkefnum sem byggja á gagnrýninni hugsun. Virkjuð er áhugahvöt nemenda, stuðlað að auknu sjálfstæði þeirra í námi og trú á eigin getu. Sterk áhersla er á samvinnu nemenda. Skólastarfið byggir á teymiskennslu sem felur í sér sameiginlega ábyrgð tveggja eða fleiri kennara á námi, líðan nemenda og samstarfi við nemendur og foreldra þeirra.
Á vef Giljaskóla er birt lýsing á lykilhæfniþáttum eftir stigum (unglingastig, miðstig og yngsta stigið). Er þar lýst kröfum á borð við ábyrgð, þrautseigju, frumkvæði og áræðni.
Skólinn hefur með einkunnarorðum og gildum mótað heildstæða stefnu um jákvæðan skólabrag. Skólabragurinn einkennist af samvinnu og ábyrgð allra í skólasamfélaginu. Í Skólanámskrá Giljaskóli segir:
„Sýn Giljaskóla tekur mið af því hvað kemur einstaklingi best að tileinka sér til að ná góðum árangri í lífinu. Metnaður, víðsýni og ábyrgð eru undirstaða góðs námsárangurs en virðing, lífsgleði og kærleikur höfða til félags- og tilfinningaþroska sem er nauðsynlegur fyrir farsæl samskipti í leik og starfi. Þessi sex lífsgildi eru notuð við ýmis tækifæri og unnið út frá þeim í daglegu starfi.“
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Giljaskóli, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.