Flokkur Fólksins: Íslenskur stjórnmálaflokkur

Flokkur fólksins er íslenskur stjórnmálaflokkur sem bauð fram í fyrsta sinn til Alþingiskosninganna 2016.

Inga Sæland er fyrsti formaður flokksins. Flokkurinn hlaut 3,5% atkvæða í kosningunum 2016, engan þingmann, en nóg til að fá ríkisstyrk. Síðla sumars árið 2017 mældist flokkurinn með 8,4% og tæplega 11% fylgi í könnunum. Flokkurinn fundaði í fullum sal í Háskólabíói og fór í mál við ríkið fyrir hönd eldri borgara. Í kosningunum 2017 náði flokkurinn hins vegar fjórum mönnum á þing og hlaut 6,9% atkvæða.

Flokkur fólksins
Fylgi Flokkur Fólksins: Íslenskur stjórnmálaflokkur 8,8%¹
Formaður Inga Sæland
Stofnár 2016
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
Félagshyggja, réttindi fatlaðra, aldraðra og öryrkja, lýðhyggja
Einkennislitur Gulur  
Sæti á Alþingi
Flokkur Fólksins: Íslenskur stjórnmálaflokkur
Listabókstafur F
Vefsíða [1]
¹Fylgi í síðustu Alþingiskosningum

Inga Sæland ætlaði að leiða lista flokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningnum 2018, en þegar boðað var til Alþingiskosninga haustið 2017 bauð hún sig fram í þeim. Kolbrún Baldursdóttir leiddi lista Flokks fólksins og var hún kjörin í borgarstjórn, þar sem flokkurinn hlaut alls 4,3% greiddra atkvæða. Kolbrún er því fyrsti fulltrúi flokksins í sveitarstjórn á Íslandi, en flokkurinn bauð ekki fram annars staðar en í Reykjavík vorið 2018. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 hlaut flokkurinn svipað fylgi og var Kolbrún enn eini borgarfulltrúi flokksins. Sama ár bauð Flokkur fólksins einnig fram á Akureyri og hlaut einn fulltrúa, Brynjólf Ingvarsson.

Í kjölfar Klaustursupptakanna sem birtar voru í lok ársins 2018 voru tveir af þingmönnum flokksins, Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, reknir úr flokknum vegna „alvarlegs trúnaðarbrests“. Flokkurinn taldi eftir það aðeins tvo þingmenn til sín, Ingu Sæland og Guðmund Inga Kristinsson.

Flokkurinn hlaut svo 8,8% atkvæða í Alþingiskosningum 2021 og fékk sex þingmenn kjörna, einn í hverju kjördæmi. Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Eyjólf Ármannsson, Guðmund Inga Kristinsson, Ingu Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.

Tilvísanir

Tengill

Tags:

Alþingiskosningar 2016Alþingiskosningar 2017Inga Sæland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Páll ÓskarKúbaHamarhákarlarSvampur SveinssonGarðurAlsírMadrídHættir sagnaListi yfir afskriftir fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins 2008SjómannadagurinnEnglandSetningafræðiEiginnafnEMacAkureyriRagnar Kjartansson (myndlistarmaður)DalvíkSpænska veikinListi yfir ráðuneyti ÍslandsAndreas BrehmeVera IllugadóttirVatnsdalurGuðríður ÞorbjarnardóttirWilliam ShakespeareÞekkingarstjórnunPíkaLangi Seli og skuggarnirMetri1986Hermann GunnarssonPaul RusesabaginaHvalirGyðingdómur3. júlíLómagnúpurEgils sagaVenesúelaAngkor WatAlþingiskosningar 2021Háskóli ÍslandsSjálfstæðisflokkurinn28. marsMichael JacksonKjarnorkuslysið í TsjernobylFreyjaTýrVopnafjörðurBoðhátturWikiLokiPortúgalMyndmálÍslensk mannanöfn eftir notkunKristbjörg KjeldRóbert WessmanWJórdaníaSteingrímur NjálssonNegullSkjaldarmerki ÍslandsFirefoxGamla bíóAnthony C. GraylingHalldór LaxnessVenus (reikistjarna)Fjalla-EyvindurTyrkland1980LotukerfiðTíu litlir negrastrákarBjór á Íslandi1996Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilöguMarðarættVatnsaflsvirkjunNorður-AmeríkaDoraemon🡆 More