Finnska Borgarastyrjöldin

Finnska borgarastyrjöldin (finnska: Suomen sisällissota; sænska: Finska inbördeskriget; rússneska: Гражданская война в Финляндии) var stríð um yfirráð í Finnlandi þegar landið breyttist úr rússnesku stórfurstadæmi í sjálfstætt ríki.

Stríðið braust út í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar í Evrópu og rússnesku byltingarinnar. Borgarastríðið var á milli rauðliða, sem lutu stjórn finnska sósíaldemókrataflokksins, og hvítliða, sem samanstóðu af íhaldsöflum finnska þingsins. Her rauðliða, sem aðallega var skipaður iðnaðar- og landbúnaðarverkamönnum, náði stjórn á borgum og iðnkjörnum Suður-Finnlands. Her hvítliða, sem skipaður var bændum og mið- og hástéttarmönnum, náði stjórn í strjálbýlli hlutum Mið- og Norður-Finnlands.

Finnska borgarastyrjöldin
Hluti af fyrri heimsstyrjöldinni, rússnesku borgarastyrjöldinni og byltingunum 1917–1923
Finnska Borgarastyrjöldin
Byggingar í rúst eftir átök borgarastyrjaldarinnar í Tampere.
Dagsetning
  • 27. janúar – 15. maí 1918
  • (3 mánuðir, 2 vikur og 4 dagar)
Staðsetning
Niðurstaða

Sigur finnsku hvítliðanna

  • Stofnun Konungsríkisins Finnlands
  • Þýsk yfirráð þar til í nóvember 1918
  • Sundrung í finnsku samfélagi
  • Hrun finnsku rauðliðanna
Stríðsaðilar
  • Finnska Borgarastyrjöldin Finnskir hvítliðar
  • Þýskaland Þýska keisaradæmið
  • Svíþjóð Svíþjóð
  • Erlendir sjálfboðaliðar:
Leiðtogar
  • Finnska Borgarastyrjöldin C. G. E. Mannerheim
  • Finnska Borgarastyrjöldin Hannes Ignatius
  • Finnska Borgarastyrjöldin Ernst Linder
  • Finnska Borgarastyrjöldin Ernst Löfström
  • Finnska Borgarastyrjöldin Martin Wetzer
  • Finnska Borgarastyrjöldin Karl Wilkman
  • Finnska Borgarastyrjöldin Hjalmar Frisell
  • Finnska Borgarastyrjöldin Harald Hjalmarson
  • Finnska Borgarastyrjöldin Hans Kalm
  • Finnska Borgarastyrjöldin Stanislaw Boguslawski
  • Þýskaland Rüdiger von der Goltz
  • Þýskaland Konrad Wolf
  • Þýskaland Hans von Tschirsky
  • Þýskaland Otto von Brandenstein
  • Þýskaland Hugo Meurer
  • Finnska Borgarastyrjöldin Kullervo Manner
  • Finnska Borgarastyrjöldin Ali Aaltonen Aftaka
  • Finnska Borgarastyrjöldin Eero Haapalainen
  • Finnska Borgarastyrjöldin Eino Rahja
  • Finnska Borgarastyrjöldin Adolf Taimi
  • Finnska Borgarastyrjöldin Evert Eloranta
  • Finnska Borgarastyrjöldin August Wesley
  • Finnska Borgarastyrjöldin Hugo Salmela
  • Finnska Borgarastyrjöldin Heikki Kaljunen(fi)
  • Finnska Borgarastyrjöldin Fredrik Johansson(fi)
  • Finnska Borgarastyrjöldin Matti Autio(fi)
  • Finnska Borgarastyrjöldin Verner Lehtimäki
  • Rússland Konstantín Jeremejev
  • Rússland Míkhaíl Svetsjníkov
  • Rússland Georgíj Búlatsel Aftaka
Fjöldi hermanna
  • Hvítliðar 80.000–90.000
  • Jägerar 1.450
  • Þýski keisaraherinn 14.000
  • Svíþjóð 800
  • Sænsku sveitirnar 1.000
  • Eistneskir sjálfboðaliðar
  • Pólsku sveitirnar 1.737
  • Rauðliðar 80.000–90.000 (2.600 konur)
  • Fyrrverandi hermenn úr rússneska keisarahernum 7.000–10.000
Mannfall og tjón
  • Hvítliðar
    • 3.500 drepnir
    • 1.650 teknir af lífi
    • 46 týndir
    • 4 látnir í haldi
  • Sænskir sjálfboðaliðar
    • 55 drepnir
    • Þjóðverjar
    • 450–500 drepnir
  • Alls
    • 5.700–5.800 dauðsföll (100–200 hlutlausir/„hvítir“ borgarar)
  • Rauðliðar
    • 5.700 drepnir
    • 10.000 teknir af lífi
    • 1.150 týndir
    • 12.500 látnir í haldi, 700 bráðkvaddir eftir lausn
  • Rússar
    • 800–900 drepnir
    • 1.600 teknir af lífi
  • Alls
    • 32.500 dauðsföll (100–200 hlutlausir/óbreyttir borgarar)

Á árunum í aðdraganda borgarastyrjaldarinnar hafði finnskt samfélag umbreyst af fólksfjölgun, iðnvæðingu, þéttbýlismyndun og þróun stéttarhreyfinga. Stjórnkerfi landsins var í miðri lýðræðis- og nútímavæðingu og því viðkvæmt. Efnahags- og samfélagsaðstæður Finna höfðu batnað hægt og bítandi og því hafði þjóðernis- og menningarvitund þeirra aukist.

Í fyrri heimsstyrjöldinni hrundi rússneska keisaradæmið og því hékk staða Finnlands í lausu lofti. Úr varð valdabarátta og vígbúnaðarkapphlaup milli vinstrisinnaðra verkamannahreyfinga og hægrisinnaðra íhaldsafla. Rauðliðarnir hrundu af stað misheppnuðu áhlaupi í febrúar árið 1918 með herstuðningi frá hina nýstofnaða Sovét-Rússlandi. Hvítliðarnir hrundu af stað gagnáhlaupi í mars og hlutu liðsauka frá þýska keisaraveldinu í apríl. Helstu orrusturnar voru háðar við Tampere og Vyborg, þar sem hvítliðar unnu sigur, og við Helsinki og Lahti, þar sem þýskir hermenn báru sigur úr býtum. Hvítliðar og þýskir bandamenn þeirra unnu stríðið að endingu. Miklu ofbeldi gegn pólitískum andófsmennum var beitt á báðum hliðum. Um 12.500 stríðsfangar úr röðum rauðliða létust úr vannæringu og sjúkdómum í fangabúðum hvítliða. Alls létust um 39.000 manns, þar af 36.000 Finnar, í átökunum.

Eftir átökin urðu Finnar hluti af áhrifasvæði Þjóðverja í stað Rússa og gerðu áætlanir um að stofna finnskt konungsríki með ættingja Vilhjálms 2. Þýskalandskeisara á konungsstól. Þegar Þýskaland tapaði fyrri heimsstyrjöldinni og keisarinn sagði af sér síðla árs 1918 var hætt við þetta og í staðinn stofnað finnskt lýðveldi. Borgarastyrjöldin skildi eftir sig djúp sár í þjóðarsál Finnlands sem tók marga áratugi að græða.

Tenglar

  • Borgþór Kjærnsted (27. mars 2018). „Af hverju varð borgarastríð í Finnlandi 1918?“. Vísindavefurinn. Sótt 24. febrúar 2024.
  • Borgþór Kjærnsted (6. apríl 2018). „Hvað getur þú sagt mér um finnsku borgarastyrjöldina 1918?“. Vísindavefurinn. Sótt 24. febrúar 2024.

Heimildir

  • Arimo, Reino (1991). Saksalaisten sotilaallinen toiminta Suomessa 1918 [Þýskar hernaðaraðgerðir í Finnlandi 1918] (finnska). Jyväskylä: Gummerus. ISBN 978-951-96-1744-2.
  • Eerola, Jari; Eerola, Jouni (1998). Henkilötappiot Suomen sisällissodassa 1918 [Mannfall í finnsku borgarastyrjöldinni 1918] (finnska). Turenki: Jaarli. ISBN 978-952-91-0001-9.
  • Muilu, Heikki (2010), Venäjän sotilaat valkoisessa Suomessa, Jyväskylä: Atena, ISBN 978-951-796-624-5
  • Paavolainen, Jaakko (1966). Poliittiset väkivaltaisuudet Suomessa 1918, I Punainen terrori [Pólitískt ofbeldi í Finnlandi 1918, I Rauða hættan] (finnska). Helsinki: Tammi.
  • Pipes, Richard (1996). A Concise History of the Russian Revolution. New York: Vintage Books. ISBN 0-679-74544-0.
  • Roselius, Aapo (2004). „Saksalaisten henkilötappiot Suomessa vuonna 1918“ [Þýsk dauðsföll í Finnlandi 1918]. Í Westerlund, L. (ritstjóri). Sotaoloissa vuosina 1914–1922 surmansa saaneet [Dauðsföll í stríðsaðstæðum frá 1914 til 1922] (finnska). Helsinki: VNKJ 10/2004, Edita. bls. 165–176. ISBN 952-5354-52-0.
  • Tikka, Marko (2014). „Warfare & Terror in 1918“. Í Tepora, T.; Roselius, A. (ritstjórar). The Finnish Civil War 1918: History, Memory, Legacy. Leiden: Brill. bls. 90–118. ISBN 978-90-04-24366-8.
  • Upton, Anthony F. (1981). Vallankumous Suomessa 1917–1918 [Bylting í Finnlandi 1917–1918] (finnska). II. árgangur. Jyväskylä: Gummerus. ISBN 951-26-2022-7.
  • Westerlund, Lars (2004a). Sotaoloissa vuosina 1914–1922 surmansa saaneet [Þeir sem voru drepnir á stríðstíma frá 1914 til 1922] (finnska). Helsinki: VNKJ 10/2004, Edita. ISBN 952-5354-52-0.
  • Westerlund, Lars; Kalleinen, Kristiina (2004). „Loppuarvio surmansa saaneista venäläisistä“ [Endanlegt mat á Rússum sem voru drepnir]. Í Westerlund, L. (ritstjóri). Venäläissurmat Suomessa 1914–1922, 2.2. Sotatapahtumat 1918–1922 [Rússnesk dauðsföll í Finnlandi 1914–1922, 2.2. Stríðsviðburðir 1918–1922] (finnska). Helsinki: VNKJ 3/2004c, Edita. bls. 267–271. ISBN 952-5354-45-8.
  • Ylikangas, Heikki (1993a), Tie Tampereelle, Porvoo: WSOY, ISBN 951-0-18897-2

Tilvísanir

Tags:

FinnlandFyrri heimsstyrjöldinRússneska byltinginStórfurstadæmið Finnland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Eiður Smári GuðjohnsenHæstiréttur BandaríkjannaHákarlSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirBleikjaBreiðdalsvíkDraumur um NínuForsetakosningar á Íslandi 2012KaupmannahöfnLaxVatnajökullHrafnSvissHalla TómasdóttirReykjavíkÍbúar á ÍslandiRisaeðlurRefilsaumurElriVopnafjörðurVífilsstaðirListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðVestfirðirVorIngvar E. SigurðssonHelförinHerðubreiðB-vítamínEinar Þorsteinsson (f. 1978)Lánasjóður íslenskra námsmannaKleppsspítaliEgill ÓlafssonListi yfir landsnúmerÓlafur Ragnar GrímssonRússlandOkSumardagurinn fyrstiRúmmálListi yfir morð á Íslandi frá 2000ÍrlandGeirfuglForsetakosningar á Íslandi 1980ForsetningSædýrasafnið í HafnarfirðiHrefnaBúdapestJóhannes Haukur JóhannessonÓslóNorræn goðafræðiSeglskútaJökullHvalirBergþór PálssonSmáríkiStýrikerfiJürgen KloppBárðarbungaInnrás Rússa í Úkraínu 2022–HjálparsögnHryggsúlaSam HarrisStöng (bær)LandsbankinnMáfarSandra BullockLandvætturMosfellsbærEldgosið við Fagradalsfjall 2021Einar BenediktssonHjaltlandseyjar🡆 More