Bola Tinubu: Forseti Nígeríu

Bola Ahmed Adekunle Tinubu (f.

29. mars 1952) er nígerískur endurskoðandi og stjórnmálamaður sem er núverandi forseti Nígeríu. Hann var áður landstjóri Lagos-fylkis frá 1999 til 2007. Tinubu var kjörinn forseti í forsetakosningum Nígeríu í febrúar 2023 og tók við embætti þann 29. maí.

Bola Tinubu
Bola Tinubu: Forseti Nígeríu
Tinubu árið 2023.
Forseti Nígeríu
Núverandi
Tók við embætti
29. maí 2023
VaraforsetiKashim Shettima
ForveriMuhammadu Buhari
Persónulegar upplýsingar
Fæddur29. mars 1952 (1952-03-29) (72 ára)
Lagos, Nígeríu
ÞjóðerniNígerískur
StjórnmálaflokkurAllsherjarráð framfarasinna (2013–)
MakiOluremi Tinubu
HáskóliChicago State University

Æviágrip

Bola Tinubu er frá suðvesturluta Nígeríu og hefur verið kallaður „pólitískur guðfaðir“ í þeim landshluta vegna þess hve oft hann hefur komið stuðningsfólki sínu fyrir í embættisstöðum. Tinubu var landstjóri Lagos-fylkis frá 1999 til 2007 og hefur mikið stært sig af uppbyggingarstarfi sem var unnið í borginni Lagos á þessum tíma. Tinubu er einn ríkasti stjórnmálamaður í Nígeríu.

Tinubu bauð sig fram í forsetakosningum Nígeríu í febrúar árið 2023 fyrir Allsherjarráð framfarasinna, flokk fráfarandi forsetans Muhammadu Buhari. Slagorð Tinubu í kosningunum var Emi lo kan, eða „Það er komið að mér“.

Helstu keppinautar Tinubu í kosningunum voru Atiku Abubakar, frambjóðandi Lýðræðisflokks alþýðunnar, og Peter Obi, frambjóðandi Verkamannaflokksins. Í heimahéraði Tinubu, Lagos, tapaði hann óvænt naumlega fyrir Peter Obi.

Á landsvísu hlaut Tinubu um 37 prósent atkvæðanna en Abubakar 29 prósent og Obi 25 prósent. Kosningakerfið í Nígeríu er með þeim hætti að til að ná kjöri til forseta verður frambjóðandi að hljóta flest atkvæði á landsvísu og meira en 25 prósent atkvæða í tveimur þriðju af fylkjum landsins. Samkvæmt opinberum talningum tókst Tinubu þetta og hann var því lýstur sigurvegari kosninganna þann 1. mars.

Í sigurræðu sinni eftir kosningarnar hvatti Tinubu til friðar og bauð keppinautum sínum að mynda með sér bandalag í þágu Nígeríu. Abubakar og Obi vefengdu báðir niðurstöður kosninganna og sögðust ætla að reyna að fá þeim hnekkt.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Muhammadu Buhari
Forseti Nígeríu
(29. maí 2023 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Bola Tinubu: Forseti Nígeríu   Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Nígería

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SvíþjóðJakobsstigarIngólfur ArnarsonKjartan Ólafsson (Laxdælu)1. maíJónas HallgrímssonSeglskútaAftökur á ÍslandiJafndægurÍslenskar mállýskurXXX RottweilerhundarOrkustofnunCharles de GaulleMynsturNæturvaktinJeff Who?Dóri DNAFæreyjarLýðræðiVatnajökullLatibær2024BónusFylki BandaríkjannaHólavallagarðurJakob 2. EnglandskonungurPragHrafna-Flóki VilgerðarsonKrákaKorpúlfsstaðirHákarlMorðin á SjöundáÓlafur Ragnar GrímssonNorðurálEvrópska efnahagssvæðiðAkureyriEgyptalandFljótshlíðAtviksorðPersóna (málfræði)HelsingiBleikjaGeysirSvartfjallalandISBNKváradagurSvissFíllPáskarSmáralindJón EspólínStari (fugl)Ungmennafélagið AftureldingBotnssúlurSnæfellsjökullSam HarrisdzfvtKötturLómagnúpurKnattspyrnufélagið FramMyndlista- og handíðaskóli ÍslandsLakagígar1974MánuðurFyrsti vetrardagurPétur Einarsson (f. 1940)Konungur ljónannaHamrastigiForseti ÍslandsPétur J. Thorsteinsson (sendiherra)ÍslendingasögurFóturBoðorðin tíuListi yfir landsnúmerSveppirHéðinn Steingrímsson🡆 More