BSRB (áður Bandalag starfsmanna ríkis og bæja) eru samtök launafólks í opinbera geiranum (ríkis og sveitarfélaga, auk fyrirtækja í almannaþjónustu) á Íslandi.
Að BSRB standa 24 aðildarfélög og er samanlagður fjöldi félaga um 21 þúsund. Um 67% félaga eru konur. Formaður BSRB er Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
Félagssvæði: | Ísland |
Fjöldi félaga: | Um 21.000 |
Formaður: | Sonja Ýr Þorbergsdóttir |
Varaformaður: | (1.) Þórarinn Eyfjörð (2.) Arna Jakobína Björnsdóttir |
Ritari: | |
Gjaldkeri: | |
Framkvæmdastjóri: | Magnús Már Guðmundsson |
Aðrir stjórnarmenn: |
|
Vefslóð: | http://www.bsrb.is/ |
Bandalagið var stofnað 14. febrúar árið 1942 og voru þá félagar 1550 talsins. Aðildarfélögin við stofnunina voru 14 talsins, og fór stofnfundurinn fram á kennarastofu Austurbæjarskólans. Fyrsti formaðurinn var Sigurður Thorlacius. Ári eftir stofnunina voru fyrstu lögin um lífeyrissjóði sett og þótt það góður árangur svo ungra samtaka. Af öðrum áföngum í baráttunni fyrir kjararéttindum má nefna setningu laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna 1954, samið var um verkfallsrétt 1976 og var hann nýttur til allsherjarverkfalla 1977 og 1984. Núverandi formaður BSRB er Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.