Andrés Manuel López Obrador: 58. forseti Mexíkó

Andrés Manuel López Obrador (f.

13. nóvember 1953), oft kallaður AMLO, er mexíkóskur stjórnmálamaður sem var kjörinn forseti Mexíkó þann 1. júlí 2018. Hann tók við embætti af Enrique Peña Nieto þann 1. desember. López Obrador var borgarstjóri Mexíkóborgar frá árinu 2000 til 2005 og naut talsverðra vinsælda í því embætti. Hann var lengi meðlimur í vinstrihreyfingunni Lýðræðislega byltingarflokknum (Partido de la Revolución Democrática) og hafði boðið sig fram sem forsetaefni flokksins í kosningum árin 2006 og 2012 en tapað í bæði skiptin. López Obrador sagði sig úr Lýðræðislega byltingarflokknum árið 2012 og gekk árið 2014 í Hreyfingu um þjóðarendurnýjun (Movimiento Regeneración Nacional eða MORENA). López Obrador hefur ýmist verið lýst sem vinstrimanni, popúlista eða þjóðernissinna.

Andrés Manuel López Obrador
Andrés Manuel López Obrador: 58. forseti Mexíkó
Forseti Mexíkó
Núverandi
Tók við embætti
1. desember 2018
ForveriEnrique Peña Nieto
Persónulegar upplýsingar
Fæddur13. nóvember 1953 (1953-11-13) (70 ára)
Tabasco, Mexíkó
StjórnmálaflokkurHreyfing um þjóðarendurnýjun
MakiRocío Beltrán Medina (g. 1979; d. 2003)
Beatriz Gutiérrez Müller (g. 2006)
StarfStjórnmálamaður
UndirskriftAndrés Manuel López Obrador: 58. forseti Mexíkó

Eftir tap sitt í forsetakosningum ársins 2006 gegn Felipe Calderón neitaði López Obrador að viðurkenna ósigur vegna gruns um kosningamisferli og lýsti sjálfan sig „lögmætan forseta“ Mexíkó. Stuðningsmenn López Obradors héldu eigin vígsluathöfn fyrir hann í Zócalo í Mexíkóborg og López Obrador skipaði í kjölfarið eigin skuggaríkisstjórn til þess að vinna gegn ríkisstjórn Calderóns. López Obrador bauð sig aftur fram fyrir Lýðræðislega byltingarflokkinn í forsetakosningum ársins 2012 en tapaði fyrir Enrique Peña Nieto.

López Obrador bauð sig fram í þriðja sinn árið 2018, í þetta sinn sem frambjóðandi flokkabandalagsins Juntos Haremos Historia („Saman mörkum við söguna“). Flokksbandalagið samanstendur af Hreyfingu um þjóðarendurnýjun, mexíkóska Verkamannaflokknum og hinum hægrisinnaða Félagslega samfundaflokki (Partido Encuentro Social; PES). López Obrador mældist snemma með afgerandi forystu í skoðanakönnunum í aðdraganda kosningarinar og vann þann 1. júlí stórsigur með um 53% atkvæða, um það bil tvöfalt fylgi þess sem hlaut næstflest atkvæði. Í sigurræðu sinni lofaði López Obrador að taka á spillingu í mexíkóskri stjórnsýslu, bæta samband við Sameinuðu þjóðirnar og aðrar mannréttindastofnanir, standa vörð um einkageirann og halda vináttu og samstarf við Bandaríkin.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Enrique Peña Nieto
Forseti Mexíkó
(1. desember 2018 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

Enrique Peña NietoLýðhyggjaMexíkóMexíkóborgVinstristefnaÞjóðernishyggja

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

GullTölfræðiPablo EscobarÞingkosningar í Bretlandi 2010BiblíanHeiðlóaÁsgrímur JónssonSérhljóðAusturríkiEpliSjávarútvegur á ÍslandiVatnsdalurSnyrtivörurSkjaldarmerki ÍslandsKlara Ósk ElíasdóttirEvrópusambandiðBankahrunið á ÍslandiHraðiHIcelandairSexTónlistarmaðurLjóstillífunSteinbíturSérsveit ríkislögreglustjóraÓákveðið fornafnFimmundahringurinnÍrlandAnthony C. GraylingLandsbankinnGuðmundur FinnbogasonCarles PuigdemontÞjóðvegur 1HjartaSeðlabanki ÍslandsBoðhátturJoachim von RibbentropÓlafur Gaukur ÞórhallssonÍslenskaSuður-AfríkaSameindAnnars stigs jafnaMinkurÞorramaturBandamenn (seinni heimsstyrjöldin)Guðrún ÓsvífursdóttirHollandTvisturSérókarÞjóðleikhúsiðEintalaKaupmannahöfnGamla bíóManchester UnitedGuðni Th. JóhannessonBragfræðiStrumparnirÍbúar á ÍslandiBiskupVetniUpplýsinginM27. marsGérard DepardieuHans JónatanHrafna-Flóki VilgerðarsonYWayback MachineKim Jong-unViðlíkingSamskiptakenningarBlóðbergWhitney HoustonJúlíus CaesarKróatíaKalsínEiginnafnAxlar-BjörnXXX Rottweilerhundar🡆 More