Skáldsaga Ódysseifur

Ódysseifur (enska: Ulysses) er skáldsaga eftir James Joyce sem kom út að hluta í hinu ameríska tímariti The Little Review frá mars 1918 til desember 1920, en í heild sinni og sem bók 1922, í París.

Ódysseifur er talinn vera ein helsta skáldsaga 20. aldarinar. Halldór Laxness sagði t.d. að hún „verkar á nútímamenn einsog Fjallið eina“. Ódysseifur 1–2 kom út á íslensku 1992–1993 í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar, með formála og skýringum.

Skáldsaga Ódysseifur
Ensk bókarkápa Ódysseifs

Staðfræði og helstu persónur

Skáldsagan gerist öll á einum fimmtudegi í Dyflinni, þann 16. júní árið 1904. Hún hefst klukkan átta um morguninn þegar Stephen Dedalus, 22 ára, hallar sig út yfir brjóstriðið á Martello-turni, þar sem hann býr, og horfir út á hið „horgræna og punghemjandi haf“. Á sama tíma, eins og kemur fram í fjórða kafla bókarinnar, er auglýsingasmalinn Leopold Bloom, 38 ára, að útbúa sér morgunverð, steikt nýru, að Eccles Street 7. Á hæðinni fyrir ofan hann sefur eiginkona hans, Molly, 34 ára, í rekkju sinni, þar sem hún á seinnipart dags eftir að njóta ásta með elskhuga sínum. Þessar þrjár persónur, sem eru aðalpersónur skáldsögunnar, samsvara Telemakkosi, Ódysseifi og Penelópu í Ódysseifskviðu og eru þær sem skáldsagan vefur saman við óteljandi smáatburði eins dags en bókin endar heima hjá Leopold Bloom, milli tvö og þrjú á föstudagsmorgni. Engin þessara persóna birtist þó í öllum köflum skáldsögunnar. Stephen Dedalus er í aðalhlutverki fyrstu þrjá kaflana, og í þeim fimmtán köflum þar sem Leopold Bloom er í aðalhlutverki er Stephen aðeins í aukahlutverki í fjórum þeirra. Molly kemur aðeins fyrir sem brotabrot og hugsanir í fyrstu 17 köflunum en er ein og í aðalhlutverki í 18 kafla, þeim síðasta í bókinni. Sá kafli hneykslaði mjög marga og varð til þess að höfundurinn var ákærður á sínum tíma.

Skipting Ódysseifs eftir atburðum í Ódysseifskviðu

    I: 1. Telemakkos. 2. Nestor. 3. Próteifur.
    II: 4. Kalýpsó. 5. Lótófagar. 6. Hades. 7. Eólos. 8. Lestrýgónar. 9. Skylla og Karybdís. 10. Skellibjörg (eða Villihamrar). 11. Sírenurnar. 12. Kýklópurinn. 13. Násíka. 14. Uxar Sólarguðsins. 15. Kirka.
    III: 16. Evmeos. 17. Íþaka. 18. Penelópa.

Tengt efni

Tenglar

Skáldsaga Ódysseifur   Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Skáldsaga Ódysseifur Staðfræði og helstu persónurSkáldsaga Ódysseifur Skipting Ódysseifs eftir atburðum í ÓdysseifskviðuSkáldsaga Ódysseifur Tengt efniSkáldsaga Ódysseifur TenglarSkáldsaga Ódysseifur1918192019221992199320. öldEnskaHalldór LaxnessJames JoyceParísSigurður A. MagnússonSkáldsaga

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Love GuruRørvikÍslenskar þýðingar á erlendum kvikmyndaheitumDanmörkGuðmundur Felix GrétarssonListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaBretlandKormákur/HvötKonstantín PaústovskíjSveinn H. GuðmarssonMaríuerlaRómverskir tölustafirJón frá PálmholtiBreiðholtStefán Hörður GrímssonTertíertímabiliðLitáenListi yfir íslensk póstnúmer149Kristján 10.AlkulVöluspáMannakornKristján EldjárnÍslenski fáninnRaunhyggjaAkureyriRisaeðlurTékklandÁtökin í Súdan 2023Jet Black JoeÍslenskir stjórnmálaflokkarGrikklandFellafífillSjónvarpiðHvalfjarðargöngSesínWayback MachineÁsgeir JónssonKóreustríðiðThe Fame MonsterEdgar Allan PoeNína Dögg FilippusdóttirEdda FalakÍslenskaBorgarnesGeorgíaSignýHallgrímur PéturssonThe FameArentHæstiréttur ÍslandsLokiFrumaKnattspyrnaFelix BergssonAlþjóðlega geimstöðinGeitPetrínaMaðurHaförnHvítlaukurMagnús SchevingKristbjörg KjeldSeglskútaListi yfir þjóðvegi á ÍslandiFacebookHeiðlóaMosfellsbærRúnirArnoddurÞingvallavatnKnattspyrnufélagið ValurGuðni Th. Jóhannesson🡆 More