Hvor tveggja beygist þannig að fyrri hlutinn beygist eins og spurnarfornafnið „hvor“ en töluorðið „tveggja“ er óbeygt. Til er gamla óákveðna fornafnið hvortveggi í einu orði þar sem fyrri liðurinn beygist eins og í hvor tveggja en seinni liðurinn eins og veikt lýsingarorð.
Óákveðnu fornöfnun „einhver“ og „nokkur“
Í nefnifalli og þolfalli í hvorugkynieintölu hafa einhver og nokkur tvímyndir í hvorugkyni. Eitthvað hefur eitthvert og eitthvað á meðan nokkur hefur nokkurt og nokkuð. Myndirnar eitthvað og nokkuð á eru sérstæðar eins og sést:
Eitthvað er á seyði, sérðu nokkuð?
Óákveðnu fornöfnun „annar hver“ og „annar hvor“
Annar hver er notað um annan hvern af þrem eða fleiri, á meðan annar hvor er notað um annan af tveim:
Hann kemur alltaf annan hvern dag.
Ég fæ annan hvorn strákinn, Jón eða Svein til að vinna hjá mér.
Óákveðin fornöfn í ensku
Óákveðin fornöfn í ensku geta verið aðrir setningarhlutar en óákveðin fornöfn. Óákveðna fornafnið many („margir“) í setningunni many disagree with his views („margir eru honum ósammála“) getur verið lýsingarorð í setningunni many people („margt fólk“) og nafnorð eins og í setningunni a good many of the students had skipped class („stór hluti nemandanna höfðu skrópað“). Af þessari ástæðu eru dæmi gefin til aðgreiningar ef merking er torskilin.
Óákveðin fornöfn í eintölu
another – Thanks, I'll have another. („Takk, ég fæ mér annan.“)
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Óákveðið fornafn, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses. ®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.