Steinunn Gestsdóttir

Steinunn Gestsdóttir (f.

17. júní 1971) er prófessor í sálfræði og aðstoðarrektor kennslumála og þróunar við Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar beinast að sjálfstjórnun barna og ungmenna og hvernig hún tengist farsælli þroskaframvindu.

Steinunn Gestsdóttir
StörfPrófessor í sálfræði og aðstoðarrektor kennslumála og þróunar við Háskóla Íslands

Ferill

Steinunn lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 1996, MA-prófi í sálfræði frá Boston University í Bandaríkjunum 2001 og doktorsprófi í þroskasálfræði (Applied Child Development) frá Tufts University, Medford, Massachusetts, 2005. Árin 2005-2008 var Steinunn lektor í þroskasálfræði við Kennaraháskóla Íslands, síðan Menntavísindasvið Háskóla Íslands 2008-2009. Hún var dósent við Menntavísindasvið 2009-2013 og við Sálfræðideild Háskóla Íslands 2013-2015. Steinunn hefur verið prófessor við Sálfræðideild HÍ frá 2015 og varð þar með fyrsti kvenprófessorinn við deildina. Hún hefur einnig verið aðstoðarrektor kennslu og þróunar við Háskóla Íslands frá 2016.

Kennsla Steinunn er á sviði þroskasálfræði, sálfræði náms og menntunar, áhættuhegðunar og seiglu ungmenna, auk aðferðafræði rannsókna. Hún hefur auk þess verið leiðbeinandi í fjölmörgum lokaverkefnum á grunnnáms- og framhaldsnámsstigi, í doktorsverkefnum og átt sæti í doktorsnefndum.

Rannsóknir

Rannsóknir Steinunnar spanna vítt svið innan þroskasálfræði um þroska barna og unglinga og hefur hún átt samstarf við erlenda og íslenska rannsakendur. Hún hefur stýrt og tekið þátt í fjölda langtímarannsókna sem snúa helst að sjálfstjórnun, farsælum þroska, námsáhuga og námsgengi barna og ungmenna, allt frá leikskólaaldri og fram á fullorðinsár.

Birtingar Steinunnar snúa að þróun sjálfsstjórnunar og hlutverki hennar í farsælum þroska og námsgengi. Hún hefur einna helst skoðað hvernig sjálfsstjórnun þróast og breytist á unglingsárum og hvaða þýðingu það hefur fyrir annan þroska ungmenna. Hún hefur sérstaklega tengt sjálfsstjórnun við farsælan þroska ungmenna (e. positive youth development), sem vísar í ýmsa styrkleika sem ungmenni hafa til að bera, svo sem heilbrigða sjálfsmynd, trú á eigin getu, góð samskipti, umhyggju og siðferðisþroska. Rannsóknir Steinunnar hafa einnig skoðað tengsl sjálfstjórnunarhæfni við námsgengi, svo og ýmsa erfiðleika, t.a.m. áhættuhegðun og einkenni kvíða og þunglyndis. Steinunn og samstarfsfólk hennar hafa gert samanburð á slíkum niðurstöðum sem þau fengu með íslenskum ungmennum og bandarískum jafnöldrum þeirra. Í rannsóknum sínum hefur Steinunn einnig beint sjónum að sjálfsstjórnun yngri barna, bæði á leikskólaaldri og við upphaf grunnskólagöngu. Niðurstöður hennar og samstarfsfólks sýna að slík geta tengist velferð barna síðar meir, ekki síst námsgengi, t.a.m. í stærðfræði og lestri.

Í rannsóknum Steinunnar hafa hún og samstarfsfólk hennar að auki borið saman sjálfstjórnunarfærni stúlkna og drengja á Íslandi við niðurstöður barna í Þýskalandi og Frakklandi.

Þær niðurstöður sem hér hefur verið lýst (og aðrar) hafa verið birtar í fjölda ritstýrðra vísindarita og bóka, þ.m.t. í handbókum og alfræðiorðabókum.

Ýmis störf og verkefni

Steinunn hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á sviði vísinda og æðri menntunar, hún hefur m.a. átt sæti í stjórnum Rannsóknasjóðs Íslands, Vísindafélags Íslendinga, Nýsköpunarsjóðs námsmanna og ritstjórn Sálfræðiritsins, auk þess að sitja í Vísinda- og tækniráðs Íslands, m.a. sem varaformaður Vísindanefndar ráðsins. Hún hefur setið í ýmsum nefndum innan Háskóla Íslands á sviði stefnumótunar, rannsókna og kennslu, m.a. sem formaður stýrihóps Heildarstefnu skólans (2015-2016), Kennslumálanefndar HÍ (frá 2016), stjórnar Menntavísindastofnunar HÍ (2009-2013) og rannsóknarráðs Menntavísindasviðs HÍ (2009-2013). Hún hefur einnig setið í Úttektarnefnd (2012) og Vísindanefnd (2009-2013) skólans.

Viðurkenningar

Árið 2015 fékk Steinunn Fjöruverðlaunin sem einn af höfundum bókarinnar „Ofbeldi á heimili: Með augum barna“ og verðlaun Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna fyrir sömu bók.

Einkalíf

Steinunn er gift Atla Magnússyni atferlisfræðingi. Þau eiga þrjú börn.

Heimildir

Tags:

Steinunn Gestsdóttir FerillSteinunn Gestsdóttir RannsóknirSteinunn Gestsdóttir Ýmis störf og verkefniSteinunn Gestsdóttir ViðurkenningarSteinunn Gestsdóttir EinkalífSteinunn Gestsdóttir HeimildirSteinunn Gestsdóttir17. júní1971Háskóli ÍslandsPrófessorSálfræði

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Helga ÞórisdóttirXHTMLFornafnMánuðurFramsóknarflokkurinnHeimsmetabók GuinnessHarry S. TrumanFíllMassachusettsHernám ÍslandsBenedikt Kristján MewesÁstralíaKartaflaSandra BullockTjaldurB-vítamíndzfvtDanmörkLandvætturSam HarrisHalla TómasdóttirBaltasar KormákurÓlafsfjörðurFáskrúðsfjörðurPóllandAlaskaFlámæliKnattspyrnufélagið HaukarHamrastigiGeorges PompidouHjálparsögnDimmuborgirHafþyrnirListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024FornaldarsögurKnattspyrnudeild ÞróttarDropastrildiTaívanFjaðureikDómkirkjan í ReykjavíkGunnar Smári EgilssonNellikubyltinginKristján EldjárnPétur Einarsson (f. 1940)Stefán Karl StefánssonRonja ræningjadóttirRaufarhöfnHrafnStella í orlofiForsetakosningar á Íslandi 1996ListeriaRagnhildur GísladóttirHetjur Valhallar - ÞórDísella LárusdóttirHelsingiHrossagaukurKínaMarokkó1. maíBreiðdalsvíkÍslenska sjónvarpsfélagiðBríet HéðinsdóttirReykjavíkNorður-ÍrlandEinar Þorsteinsson (f. 1978)Matthías JochumssonHellisheiðarvirkjunVladímír PútínLánasjóður íslenskra námsmannaGuðni Th. JóhannessonEiríkur blóðöx🡆 More