Skjaldarmerki Austurríkis sýnir svartan örn sem horfir til vinstri.
Slitnir hlekkir eru á báðum fótum en klærnar halda á hamri og sigð. Á brjóstinu er þjóðfáninn í skjaldarformi og á höfðinu kóróna í formi borgarmúrs. Örninn var merki hins heilaga rómverska keisaradæmis, en Austurríki var hluti af því fram í byrjun 19. aldar. Sigðin merkir bændurna. Hamarinn merkir vinnuaflið. Kórónan merkir borgarana. Eins og áður segir var örninn í aldaraðir merki hins heilaga rómverska keisaradæmis og þar með Austurríkis en núverandi arnarmerki var tekið upp 1919, við upplausn austurrísk-ungverska sambandsríkisins. Árið 1945 var slitnu hlekkjunum bætt við en þeir merkja sigur yfir einræðisstjórn nasista á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Skjaldarmerki Austurríkis, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.