San Salvador er höfuðborg og stærsta borg El Salvador og samnefndrar sýslu innan landsins.
Borgin er stjórnsetur og menningar-, mennta- og efnahagsmiðstöð landsins. Alls búa 2.404.097 manns á stórborgarsvæði San Salvador, sem nær yfir borgina sjálfa og 13 af sveitarfélögum hennar. Á þéttbýlissvæðinu búa 1.600.000 manns.
San Salvador | |
---|---|
Hnit: 13°41′56″N 89°11′29″V / 13.69889°N 89.19139°V | |
Land | El Salvador |
Sýsla | San Salvador-sýsla |
Stofnun | 1. apríl 1525 |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Mario Durán |
Flatarmál | |
• Samtals | 72,25 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 658 m |
Mannfjöldi (2018) | |
• Samtals | 2.406.709 |
• Þéttleiki | 72,25/km2 |
Póstnúmer | 503 |
Tímabelti | UTC−06:00 |
Vefsíða | sansalvador |
San Salvador er mikilvæg fjármálamiðstöð Mið-Ameríku. Borgin hýsir ríkisstjórn El Salvador, löggjafarþing El Salvador, hæstarétt El Salvador og fleiri ríkisstofnanir auk híbýla forseta El Salvador. San Salvador er staðsett á salvadorska hálendinu og er umkringd eldfjöllum þar sem jarðskjálftar eru tíðir. Kaþólska erkibiskupdæmið í El Salvador er staðsett í San Salvador ásamt miðstöðvum fleiri kristinna kirkjudeilda, þar á meðal höfuðstöðvum evangelista, mormóna, baptista og hvítasunnukirkjunnar. Í San Salvador er næststærsti söfnuður Gyðinga í Mið-Ameríku og lítill söfnuður múslima.
Ýmsir alþjóðlegir íþrótta-, stjórnmála- og samfélagsviðburðir hafa verið haldnir í San Salvador. Árin 1935 og 2002 voru Miðameríku- og Karíbahafsleikarnir haldnir þar, Mið-Ameríkuleikarnir árin 1977 og 1994 og fegurðarsamkeppnin Ungfrú Alheimur árið 1975. Árið 2008 hélt borgin 18. leiðtogafund spænsku- og portúgölskumælandi ríkja, mikilvægasta þjóðfélagspólitíska viðburð þessara menningarsvæða.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article San Salvador, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.