Ronnie James Dio

Ronnie James Dio fæddur Ronald James Padavona (f.

10. júlí, 1942 – d. 16. maí, 2010) var bandarískur tónlistarmaður sem starfaði meðal annars með hljómsveitunum Rainbow, Black Sabbath og sveit sinni Dio. Hann var þekktur fyrir kraftmikla rödd sína og fantasíukennda textagerð. Tónlistarferill hans spannaði meira en 50 ár.

Ronnie James Dio
Ronnie James Dio (2009)
Ronnie James Dio
Stytta af Dio í Kavarna, Búlgaríu.

Ronald James Padavona fæddist í Portsmouth í New Hampshire í Bandaríkjunum árið 1942 en flutti ungur að árum til New York-fylkis og leit ævinlega á sig sem New York-búa þrátt fyrir að hafa búið í Los Angeles seinni part ævinnar. Hann var af ítölskum ættum og lærði sem barn á trompet (sem hann þakkaði sönghæfileika sína að hluta til). Dio tók þátt í skólahljómsveitum þar sem hann spilaði á trompet og bassa ásamt því að syngja. Síðar var hann meðlimur bandsins Elf (sem hétu líka m.a. Electric Elves).

Rainbow

Stóra stökkið kom hins vegar þegar Roger Glover, bassaleikari Deep Purple, sá hann spila á kynningartónleikum með hljómsveit sinni Elf í Bandaríkjunum og bauð þeim að hita upp fyrir Deep Purple þar vestra. Ritchie Blackmore, gítarleikari Deep Purple, sá að mikið efni var í Dio og bauð honum að syngja með sér á smáskífu. Þessi skífa varð að plötu og Blackmore yfirgaf Deep Purple til að einbeita séð að nýju verkefni: Rainbow. Dio átti nokkur góð ár með Rainbow og tók upp þrjár breiðskífur með þeim. Eftir listrænan ágreining við Blackmore ákváð Dio að yfirgefa Rainbow þar sem Blackmore vildi snúa sér að aðgengilegra rokki.

Black Sabbath

Sama ár og Ozzy Osbourne var rekinn úr Black Sabbath, 1979, stakk Don Arden (faðir Sharon Osbourne) upp á Dio sem söngvara við hljómsveitina. Úr því varð. Dio hjálpaði Sabbath að rísa upp úr öskustónni og platan Heaven and Hell náði nokkrum vinsældum. Þó að vel hafi farið með þeim í upphafi myndaðist núningur milli Geezer Butler og Tony Iommi annars vegar og Dio og Vinnie Appice (trommara) hins vegar. Niðurstaðan úr því varð að Dio og Appice hættu í Sabbath. Árin 1991-1993 átti Dio endurkomu í Sabbath með plötunni Dehumanizer og svo aftur með hljómsveitinni Heaven and Hell (Dio útgáfa Sabbath) 2006–2010 með plötunni the Devil you know.

Dio

Árið 1982 stofnuðu Dio og Appice hljómsveitina Dio. Þeir fengu til liðs við sig írska gítarleikarann Vivian Campbell og skoska bassaleikarann Jimmy Bain sem hafði verið með Rainbow. Þessi liðsskipan varði í þrjár plötur. Hljómsveitin náði vinsældum með frumburði sínum Holy Diver og smáskífum af henni eins og Holy Diver og Rainbow in the Dark.

Árið 2009 tók Dio upp síðasta lag sitt með Dio bandinu, Electra og kom á box-setti með endurútgefnu efni. Dio auðnaðist ekki að klára breiðskífurnar Magica II og III sem voru í bígerð.

Andlát og eftirmálar

Árið 2009 Dio greindist með magakrabbamein í nóvember og lést í maí 2010. Eiginkona hans Wendy stofnaði sjóðinn Stand up and shout til styrktar krabbameinsrannsóknum eftir andlát hans.

Árið 2021 kemur út sjálfsævisagan Rainbow in the Dark en Dio hafði ekki fulllokið við hana áður en hann dó. Því kláraði vinur hans Mick Wall bókina með hjálp Wendy Dio.

Árið 2022 kom út heimildamyndin Dio: Dreamers Never Die.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Ronnie James Dio RainbowRonnie James Dio Black SabbathRonnie James Dio Andlát og eftirmálarRonnie James Dio TilvísanirRonnie James Dio TenglarRonnie James Dio10. júlí16. maí19422010Black SabbathDio

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

TaugakerfiðÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaMorð á ÍslandiHarpa (mánuður)ValurFimleikafélag HafnarfjarðarHáskóli ÍslandsFrumtalaVarmasmiðurJohannes VermeerHallgerður HöskuldsdóttirGuðlaugur ÞorvaldssonVestfirðirÞykkvibærBríet HéðinsdóttirÞingvallavatnSeyðisfjörðurSkaftáreldarBjörgólfur Thor BjörgólfssonÍslendingasögurGaldurKóngsbænadagurHákarlListi yfir skammstafanir í íslenskuKeila (rúmfræði)Dísella LárusdóttirReykjanesbærKristrún FrostadóttirÍslenskt mannanafnJava (forritunarmál)FiskurSkúli MagnússonKartaflaKirkjugoðaveldiNeskaupstaðurStefán MániJólasveinarnirViðtengingarhátturGeirfuglTíðbeyging sagnaListi yfir íslenska sjónvarpsþættiPétur Einarsson (f. 1940)MarylandHæstiréttur BandaríkjannaPortúgalKristján 7.Ólafur Jóhann ÓlafssonEllen KristjánsdóttirXHTMLLánasjóður íslenskra námsmannaSanti CazorlaSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Silvía NóttVigdís FinnbogadóttirHelsingiEldgosið við Fagradalsfjall 2021UppköstSmáralindKúlaBessastaðirNafnhátturBergþór PálssonNáttúrlegar tölurLatibærSveppirÁsdís Rán GunnarsdóttirMelar (Melasveit)OrkumálastjóriGísla saga SúrssonarAndrés ÖndStefán Karl StefánssonGeysirVorJökull🡆 More