Ritrýni er það ferli að að bera fræðileg ritverk höfundar undir sérfræðinga á viðeigandi sviði áður en það er gefið út.
Ritrýni er form af jafningjamati. Mikilvægt er að nafnleyndar sé gætt í þessu ferli — bæði er höfundur ritverksins sem rýna skal ónafngreindur og eins eru ritrýnendur ónafngreindir. Þannig vita ritrýnendur ekki hver höfundur ritverksins er né heldur veit höfundur frá hverjum athugasemdir sem honum gætu borist eru.
Ritstjórar fræðitímarita styðjast einkum við ritrýni til þess að velja greinar í tímaritið. Ritrýninni er ætlað að tryggja að ritverk standist fræðilegar kröfur og að ákvarðanir um útgáfu byggist einungis á verðleikum ritverksins. Innan fræðasamfélagsins eru tímarit sem eru ekki ritrýnd gjarnan talin óáreiðanlegri en þau sem eru ritrýnd.
Á endanum er ritstjóri tímarits ábyrgur fyrir því að efni sem valið er til birtingar standist fræðilegar kröfur enda þótt höfundurinn beri einn ábyrgð á innihaldinu. Þegar ritstjóri vísar handriti til ritrýnanda mælir ritrýnandinn yfirleitt með því:
Venjulega er hver grein send til tveggja eða þriggja ritrýnenda. Ritrýni er venjulega ekki launuð.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ritrýni, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.