Prins Póló (pólska: Prince Polo) er súkkulaði frá Póllandi sem notið hefur vinsælda hjá íslenskum neytendum um áratugaskeið.
Sælgætistegundin var kynnt til sögunnar árið 1955 af fyrirtækinu Olza í Cieszyn í sunnanverðu Póllandi. Það varð þegar þegar vinsælt meðal heimamanna og varð snemma útflutningsvara til grannþjóðanna þar sem það hefur haft góða markaðshlutdeild til þessa dags.
Sama ár og varan kom á markað gerðu Íslendingar og Pólverjar vöruskiptasamning, þar sem Pólverjar keyptu fiskafurðir en í staðinn var nauðsynlegt að finna pólskar neysluvörur sem Íslendingum féllu í geð. Heildsala Ásbjörns Ólafssonar tryggði sér umboðið fyrir Prins Pólóinu og snúið var á strangar innflutningsreglur á erlendu sælgæti með því að skilgreina vöruna sem kex.
Þegar best lét átu Íslendingar að meðaltali eitt kíló af Prins Póló á mann á ársgrundvelli, en á árinu 2014 stóð talan í hálfu kílói.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Prins Póló, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.