Mattel er einn stærsti leikfangaframleiðandi heims.
Það framleiðir meðal annars leikföng undir vörumerkjunum Barbie, Fisher Price, Hot Wheels og Matchbox. Fyrirtækið var stofnað í Bandaríkjunum árið 1945 af Harold Matson og Elliot Handler og er nafn þess dregið af fyrstu stöfunum í nöfnum þeirra. Þekktasta leikfang fyrirtækisins er barbídúkkan sem Ruth Handler, eiginkona Elliots, þróaði árið 1959. Síðustu verksmiðju Mattel í Bandaríkjunum var lokað 2002 og eftir það hefur öll framleiðsla þess farið fram í Asíu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Mattel, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.