María Markan Östlund (fædd María Einarsdóttir; 25.
júní">25. júní 1905 – 15. maí 1995) var íslensk óperusöngkona. Hún er af mörgum talin ein helsta klassíska söngkona sem Ísland hefur alið. María starfaði mjög víða, til dæmis í Berlín, Kaupmannahöfn, London og New York. Hún var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1940.
María Markan | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | María Markan 1905 |
Dáin | 1995 |
Störf | Söngvari |
Hljóðfæri | Rödd |
María fæddist í Ólafsvík og ólst síðar upp í Laugarnesinu í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Einar Markússon, síðar aðalbókari ríkisins, og kona hans, Kristín Árnadóttir. María var alin upp á mjög tónelsku heimili og æfði píanóleik frá 8 ára aldri. Hún stundaði síðar nám við Kvennaskólann í Reykjavík í tvö ár, og hugðist leggja stund á hjúkrun en var hvött til að einbeita sér að tónlistinni. Hún hélt sína fyrstu sjálfstæðu tónleika á íslandi árið 1930. Hún stundaði svo söngnám hjá Ellu Schmucker í Berlín, en hún var sjálf nemandi Pauline Viardot-Garcia af hinni víðfrægu Garcia söngfjölskyldu. Maria Markan hélt fyrstu sjálfstæðu tónleika sína í Berlín árið 1935 og var ráðin sama ár að Schiller-óperunnni í Hamborg.
Á næstu árum söng hún víðsvegar um Þýskaland og Norðurlönd. Haustið 1938 söng María hlutverk greifafrúarinnar í Brúðkaupi Figaros eftir Mozart við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. Þar heyrði hinn frægi hljómsveitarstjóri Fritz Busch til hennar og réð hana umsvifalaust til að syngja sama hlutverk við hina nafntoguðu óperu í Glyndebourne á Bretlandi.
Í upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar fór Maria Markan í sex mánaða söngferðalag til Ástralíu. Þaðan lá leiðin til Kanada og loks til New York, þar sem María Markan var ráðin að Metropolitan-óperunni. María Markan starfaði við Metropolitan-óperuna á árunum 1941 – 42 en árið 1942 gekk hún að eiga Georg Östlund, sem var sonur Davíðs trúboða og prentsmiðjustjóra. Þau hjón bjuggu fyrst í New York, síðan í Kanada en fluttust til Íslands árið 1955. Þau eignuðust einn son, Pétur Östlund, sem er þekktur tónlistarmaður og býr og starfar i Svíþjóð.
Eftir heimkomuna rak Maria Markan söngskóla í Reykjavík og kenndi mörgum verðandi söngvurum. Eftir lát eiginmanns síns fluttist María Markan aftur í Laugarnesið.
78 snúninga
45 snúninga
LP
78 snúninga
78 snúninga
78 snúninga
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article María Markan, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.