Kristján Albertsson (9.
júlí">9. júlí 1897 – 31. janúar 1989) var íslenskur rithöfundur, fræðimaður og ævisagnaritari sem starfaði lengi í íslensku utanríkisþjónustunni. Ef til vill er hann nú best þekktur fyrir frægan ritdóm sem hann skrifaði um Vefarann mikla frá Kasmír eftir Halldór Laxness, sem hófst á orðunum: „Loksins, loksins.“
Kristján varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1917 og gegndi þar embætti forseta Framtíðarinnar, nemendafélags MR, árið 1916. Hann las síðan bókmenntasögu við Kaupmannahafnarháskóla 1917-1921 og stundaði svo nám í Frakklandi og Þýskalandi. Þegar heim kom varð Kristján ritstjóri tímaritanna Varðar 1924-1927 og Vöku 1927-1929 og var áberandi í menningarlífi Reykjavíkur, meðal annars formaður Leikfélags Reykjavíkur, leikstjóri um skeið og skrifaði leikrit sem sett voru á svið.
Árið 1935 varð hann lektor í íslensku við háskólann í Berlín og gegndi því starfi til 1943. Árið 1946 gekk hann í utanríkisþjónustuna og var sendifulltrúi, lengst af í París en einnig á allsherjarþingi SÞ í New York um tíma.
Kristján skrifaði fjölda bóka, meðal annars ævisögu Hannesar Hafstein í þremur bindum, tvær skáldsögur, tvö leikrit og fjölda ritgerða og greina sem gefnar voru út á bókum. Hann sá einnig um útgáfu á ýmsum bókum og ritsöfnum. Ævisaga hans, Margs er að minnast, kom út árið 1985.
Kristján var á unglingsárum einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Fram árið 1908. Hann barðist fyrir því að nafni félagsins yrði breytt í Fram en upphaflega hafði því verið gefið heitið Kári.
Fyrirrennari: Sigurður Grímsson |
| Eftirmaður: Vilhjálmur Þ. Gíslason |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kristján Albertsson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.