Keisari er titill (karlkyns) einvalds sem er almennt séð litið svo á að sé æðri konungi.
Samsvarandi titill konu er keisaraynja eða keisaradrottning, hvort sem um er að ræða ríkjandi keisaraynju eða eiginkonu ríkjandi keisara. Kjörkeisararnir voru þeir keisarar nefndir sem voru kjörsynir keisaranna á undan sér. Íslenska orðið keisari er úr þýsku, Kaiser, sem aftur er dregið af nafni Júlíusar Caesars. Slavneski titillinn tsar er dreginn af sama orði.
Keisari ræður yfirleitt yfir keisaradæmi eða heimsveldi (ríki sem inniheldur mörg áður sjálfstæð ríki eða svæði sem eru landfræðilega og menningarlega aðgreind).
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Keisari, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.