Kóngsbænadagur eða stórbeðudagur (danska: store bededag færeyska: dýri biðidagur) er föstudagurinn í 4.
viku eftir páska. Kóngsbænadagur var sérstakur hátíðisdagur sem Kristján 5. Danakonungur fyrirskipaði í öllu ríki sínu fjórða föstudag eftir páska. Uppruni dagsins er sá að Hans Bagger Sjálandsbiskup lét taka upp þrjá nýja föstu- og hátíðisdaga í biskupsdæmi sínu á árunum 1675 til 1677. Af þessum þremur var kóngsbænadagurinn lögboðinn í öllu ríkinu af konungi árið 1686. Þennan dag átti að loka krám og verslunum og hringja til messu.
Í Kaupmannahöfn komst fljótlega sú hefð á að borgarar fögnuðu vori þennan dag með því að klæða sig upp á og fá sér göngutúr á borgarvirkjunum. Vegna þessarar hefðar var deginum hlíft, að talið er, þegar Johann Friedrich Struensee fækkaði helgidögum ársins um helming 20. október 1770.
Dagurinn er enn haldinn hátíðlegur í Danmörku og Færeyjum en dagurinn var afnuminn sem helgidagur af Alþingi á Íslandi árið 1893. Upphaflega átti líka að afnema skírdag, annan í páskum, uppstigningardag og annan í hvítasunnu en horfið var frá því með alla daga nema kóngsbænadaginn.
Kóngsbænadagurinn virðist hafa verið frekar óvinsæll á Íslandi eins og þessi húsgangur ber með sér:
Ekki er það þó einleikið. Í Höllu eftir Jón Trausta er fjallað um gleði vinnuhjúa sem fengu frí á kóngsbænadag og notuðu það m.a. til hvíldar, skemmtana og drykkju - sem og til að heimsækja aðra bæi og undirbúa vistaskipti um vinnuhjúaskildaga, sem voru skammt undan.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kóngsbænadagur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.