Home er kvikmynd frá árinu 2009, eftir leikstjórann Yann Arthus-Bertrand.
Kvikmyndin var fjármögnuð af stórfyrirtækinu PPR, sem er móðurfyrirtæki tískuframleiðandans Gucci. Myndin er gefin út með Creative Commons leyfi og frítt er að dreifa myndinni, svo framalega að hún sé að öllu leyti óbreytt.
Home | |
---|---|
Home | |
Leikstjóri | Yann Arthus-Bertrand |
Framleiðandi | Europa Corporation |
Frumsýning | 5. júní 2009 (heimsfrumsýning) |
Lengd | 93 mínótur og 18 sekóndur |
Tungumál | enska |
Ráðstöfunarfé | € 13.000.000 |
Tilgangur og skilaboð kvikmyndarinnar er að mannkyn þurfi að taka sig á til að raska ekki jafnvægi jarðarinnar. Nokkur lönd eru nefnd til fyrirmyndar að þessu markmiði. Kosta Ríka er nefnd til fyrirmyndar að einblína á grunnstoðir samfélagsins og að hafa ákveðið að leggja niður her sinn. Nýja Sjáland, Ísland, Svíþjóð, Ástralía og Danmörk eru öll nefnd sem dæmi um þjóðir sem hafa nýtt sér endurnýjanlega orku, á einn eða annan hátt.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Home (kvikmynd), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.