Heimspeki 18.
aldar, einnig nefnd heimspeki upplýsingarinnar eða heimspeki upplýsingartímans, er tímabil í sögu vestrænnar nýaldarheimspeki, einkum evrópskrar heimspeki. Stundum er 17. öldin einnig talin heyra til heimspeki upplýsingarinnar.
Á 18. öld ríkti mikil bjartsýni meðal heimspekinga og vísindamanna um getu vísindanna til þess að útskýra þau lögmál sem giltu um heiminn og um almennar framfarir. Þessi framfaratrú var einn þáttur í þeirri hugmyndafræði sem gat af sér frelsisstríð Bandaríkjanna og frönsku byltinguna og síðar sjálfstæðisbaráttu suður-amerískra ríkja. Hún gat einnig af sér klassíska frjálshyggju, lýðræði og auðvaldshyggju.
Trú og guðrækni voru hjá ýmsum höfundum nátengd iðkun heimspekinnar. Írski heimspekingurinn George Berkeley reyndi að sýna fram á tilvist guðs með heimspekilegum rökum. En ýmsir höfundar, eins og Thomas Paine, Voltaire, Jean-Jacques Rousseau og David Hume, dróu í efa og réðust jafnvel gegn kennivaldi kirkjunnar. Raunhyggja naut aukinna vinsælda á 18. öld og hafði áhrif á stjórnspekihugmyndir, stjórnsýslu og vísindi, eins og eðlisfræði, efnafræði og líffræði.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Heimspeki 18. aldar, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.