Glíma er íslensk íþrótt.
Í upphafi viðureignar heilsast glímumenn, taka sér stöðu, taka tökum og stíga. Þegar báðir eru tilbúnir gefur yfirdómari merki, mega þeir þá sækja brögðum hvor gegn öðrum. Markmiðið í hverri viðureign er að veita andstæðingnum byltu með löglegu glímubragði, en halda jafnvægi sjálfur að því loknu.
Helsta mót glímunnar er Grettisbeltið hjá körlum og Freyjumenið hjá konum. Grettisbeltið er einn elsti verðlaunagripur á Íslandi.
Glíma flokkast sem fangbragðaíþrótt eins og til dæmis júdó og súmó.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Glíma, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.