Skáldsaga Dúna

Dúna (enska: Dune) er vísindaskáldsaga eftir bandaríska rithöfundinn Frank Herbert.

Hún kom upphaflega út sem framhaldssaga í tveimur hlutum (sem 'Dune World' árin 1963-64 og 'Prophet of Dune' árið 1965 ) í tímaritinu Analog.

Dúna
HöfundurFrank Herbert
Upprunalegur titillDune
ÞýðandiKári Emil Helgason og Dýrleif Bjarnadóttir
LandFáni Bandaríkjana Bandaríkin
TungumálEnska
StefnaVísindaskáldskapur
ÚtgefandiChilton Books
Útgáfudagur
1963–65 (sem framhaldssaga); ágúst 1965 (sem bók)
Síður896
ISBNISBN 9789935485403
FramhaldDune Messiah 

Bókin deildi Hugo-verðlaununum fyrir bestu skáldsöguna með bókinni This Immortal eftir Roger Zelazny og vann til Nebula-verðlaunanna sem besta skáldsagan við fyrstu veitingu þeirra árið 1966. Dúna er ein söluhæsta vísindaskáldsaga bókmenntasögunnar.

Sögusvið Dúnu er í fjarlægðri framtíð í lénssamfélagi þar sem voldugar aðalsættir stjórna heilum plánetum sem lénum. Aðalpersóna bókarinnar er hertogasonurinn Páll Atreifur (e. Paul Atreides), sem flytur til plánetunnar Arrakis eftir að fjölskylda hans hlýtur umboð til að ráða yfir henni sem léni. Plánetan er hrjóstrug og strjálbýl eyðimörk en hún er jafnframt eina uppspretta svokallaðs melans, eða „krydds“, sem er lyf sem lengir lífið og styrkir hugarafl fólks. Melans er jafnframt nauðsynlegt við geimferðir, sem útheimta fjölvíddarvitund og fyrirhyggju sem er aðeins möguleg með lyfinu. Þar sem aðeins er hægt að vinna melans á Arrakis er stjórn plánetunnar bæði eftirsóknarverð og víðsjárverð. Í sögunni er fjallað um flókið samspil stjórnmála, trúarbragða, vistfræði, tækni og mannlegra tilfinninga á meðan fylkingar innan keisaradæmisins heyja valdabaráttu um stjórn yfir Arrakis og kryddinu.

Íslensk þýðing

Dúna kom út í íslenskri þýðingu Kára Emils Helgassonar og Dýrleifar Bjarnadóttur árið 2022 hjá bókaútgáfunni Partusi. Þótt orðið dune útleggist venjulega á íslensku sem „sandalda“ eða „sandskafl“ ákváðu þýðendurnir að þýða titil bókarinnar sem Dúnu. Ástæðan fyrir valinu var sú að titillinn vísar meðal annars til viðurnefnis á plánetunni Arrakis, þar sem ekkert vatn er að finna. Þýðendum þótti órökrétt að láta íbúa plánetunnar nota orð sem vísa í vatn eða snjó til að lýsa grundvallarþáttum í eyðimerkurlandslaginu. Var því ákveðið að nota orðið dúnu sem tökuorð.

Tilvísanir

Skáldsaga Dúna   Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

BandaríkinFrank HerbertVísindaskáldsaga

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

VesturbyggðUngverjalandJóhannes Sveinsson KjarvalSprengjuhöllinElísabet 2. BretadrottningÍslensk sveitarfélög eftir flatarmáliGarðaríkiSagnorðFenrisúlfurMillimetriBjörgólfur Thor BjörgólfssonAngkor WatVSjálfbærniSnjóflóð á ÍslandiSveinn BjörnssonKarlListi yfir fugla ÍslandsGíraffiBragfræðiSkjaldbreiður1944ValkyrjaGaldra–LofturListi yfir landsnúmerVenesúelaMalaríaIstanbúlSjálfstætt fólkGullæðið í KaliforníuAtlantshafsbandalagiðSnjóflóðin í Neskaupstað 1974Frumbyggjar AmeríkuVestur-SkaftafellssýslaVenus (reikistjarna)Giordano Bruno28. marsDanmörkMoldóvaLangreyðurTýrÁbendingarfornafnTeTónstigiJosip Broz TitoAuschwitzHlutlægniSkapahárÍbúar á ÍslandiMHafþór Júlíus BjörnssonSnjóflóðið í SúðavíkÍslenskir stjórnmálaflokkarSvartfuglarÞýskalandDaniil24. marsGrænmetiFinnlandVanirGyðingdómurNapóleonsskjölinXÍslensk mannanöfn eftir notkun/Einn nafnhafiLiðfætluætt1908ÁratugurSkyrbjúgurFlosi ÓlafssonÓrangútanRaufarhöfnFyrri heimsstyrjöldinSíleÁsgeir Trausti🡆 More