Chur

Chur er höfuðborg svissnesku kantónunnar Graubünden og er jafnframt stærsta borgin í kantónunni með 34 þúsund íbúa (2013).

Hún myndaðist við hernám Rómverja í landinu og er því einnig elsta borgin í Sviss.

Skjaldarmerki Chur Lega Chur í Sviss
Chur
Chur
Upplýsingar
Kantóna: Graubünden
Flatarmál: 28,09 km²
Mannfjöldi: 34.350 (31. desember 2013)
Hæð yfir sjávarmáli: 593 m
Vefsíða: www.chur.ch

Lega og lýsing

Chur liggur við Rínarfljót norðarlega í kantónunni, rétt sunnan við smáríkið Liechtenstein. Næstu borgir eru St. Gallen til norðurs (60 km), Zürich til norðvesturs (80 km) og Luzern til vesturs (90 km). Chur liggur í dalverpi milli hárra fjalla. Rínarfljótið er enn lítið á þessum stað. Rúmlega helmingur bæjarsvæðisins var þakið skógi árið 1997. Frá Chur liggja akvegir víða um Alpafjöll, til dæmis til skíðasvæðanna austur til Arosa, Davos og St. Moritz.

Skjaldarmerki

Skjaldarmerki Chur er svartur geithafur innan í rauðu borgarhliði. Merki þetta hefur verið notað sem stimpilmynd frá 14. öld.

Orðsifjar

Borgin hét á latnesku Curia Raetorum. Curia er dregið af orðinu kora, sem merkir ættflokkur.

Söguágrip

Chur 
Chur í kringum aldamótin 1900
  • Chur myndaðist sem bær við hernám Rómverja í landinu 15 f.Kr. og er yfirleitt talin elsta borgin í Sviss.
  • Á 4. öld, þegar kristni varð ríkistrú í Rómaveldi, var biskupsstóllinn í Chur stofnaður, sá fyrsti norðan Alpa.
  • Á 6. öld tóku frankar borgina, en eftir Verdun-samninginn árið 843 varð hún hluti af þýska ríkinu.
  • 925/926 réðust Ungverjar á borgina og skemmdist hún verulega í bardögum.
  • 949 og 954 réðust márar á borgina en þeir höfðu lagt í skæruhernað frá Íberíuskaga.
  • Í gegnum miðaldirnar var Chur eins og borgardyr fyrir Alpaskörðin til Ítalíu en frá borginni mátti komast yfir ýmis skörð til ýmissa átta.
  • Á 13. öld fékk Chur borgarmúra til varnar óvinum.
  • 1523 urðu siðaskiptin í borginni. Borgarbúar höfðu fram að þessu verið undir stjórn biskupsins en ákváðu að taka nýju trúnni til að auka frelsi sitt.
  • Seinna á 16. öld verður þýskan nokkurs konar málamiðlunarmál í Chur en íbúar höfðu fram að þessu talað ýmist þýsku eða retórómönsku. Í dag er þýskan aðaltungumálið í borginni.
  • 1820 varð Chur að höfuðborg Graubünden, sem áður hafði verið innlimuð í helvetíska lýðveldið (Sviss) 1803.
  • Í dag er þjónusta aðalatvinnugeiri borgarinnar.

Gallerí

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Chur“ á þýsku útgáfu Wiki. Sótt mars 2011.

Tags:

Chur Lega og lýsingChur SkjaldarmerkiChur OrðsifjarChur SöguágripChur GalleríChur HeimildirChur2013GraubündenRómaveldiSviss

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Stari (fugl)Listi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaLómagnúpurGeysirIngvar E. SigurðssonÞýskalandListi yfir morð á Íslandi frá 2000EgyptalandHelsingiSvampur SveinssonSnípuættÞjóðleikhúsiðHringadróttinssagaDropastrildiAriel HenryDanmörkKýpurGamelanSöngkeppni framhaldsskólannaJapanJakobsstigarPáll ÓlafssonAlþýðuflokkurinnÁslaug Arna SigurbjörnsdóttirPatricia HearstTaílenskaMyriam Spiteri DebonoKalda stríðiðLánasjóður íslenskra námsmannaJón Múli ÁrnasonHarpa (mánuður)Forsetakosningar á Íslandi 2004LokiÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvag5c8yBotnlangiÓlafur Egill EgilssonEiríkur blóðöxVallhumallAndrés ÖndNáttúruvalViðtengingarhátturPétur Einarsson (flugmálastjóri)LundiHarry S. TrumanHvalirSelfossJóhannes Sveinsson KjarvalFlateyriSpánnNoregurSeldalurÍslenski hesturinnSpilverk þjóðannaAladdín (kvikmynd frá 1992)Knattspyrnufélagið VíkingurListi yfir landsnúmerFyrsti vetrardagurKonungur ljónannaÞrymskviðaAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)MaðurJakob Frímann MagnússonMadeiraeyjarWillum Þór ÞórssonLýðstjórnarlýðveldið KongóÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaBreiðholtRisaeðlurMatthías JochumssonTyrklandEgill Skalla-GrímssonEvrópaGísla saga Súrssonar🡆 More