Blade Runner er vísindaskáldsögumynd eftir Ridley Scott frá 1982, með Harrison Ford, Rutger Hauer, Sean Young og Edward James Olmos í aðalhlutverkum.
Myndin byggist lauslega á skáldsögu Philip K. Dick Do Androids Dream of Electric Sheep? frá 1968. Myndin gerist í dystópískri framtíð árið 2019 í Los Angeles, þar sem gervimenni eru framleidd af stórfyrirtækinu Tyrell Corporation með líftækni til að vinna í geimnýlendum. Hópur gervimenna flýr aftur til jarðar og lögreglumaðurinn Rick Deckard (Ford) fær það verkefni að ná þeim og eyða þeim.
Blade Runner gekk illa í byrjun og var gagnrýnd fyrir hæga framvindu og skort á spennu. Hún varð síðar költmynd og er nú álitin ein af bestu vísindaskáldsagnamyndum allra tíma og eitt besta dæmið um ný-noir-mynd. Tónlistin í myndinni, eftir Vangelis, var tilnefnd til BAFTA-verðlauna og Golden Globe-verðlauna.
Kvikmyndin hafði mikil áhrif á aðrar vísindaskáldsögumyndir, bókmenntir, tölvuleiki og teiknimyndir. Hún vakti athygli á verkum Philip K. Dick og síðan hafa verið gerðar fleiri myndir eftir bókum hans, eins og Total Recall (1990), Minority Report (2002) og A Scanner Darkly (2006). Árið 2017 kom út framhaldsmyndin Blade Runner 2049 eftir Denis Villeneuve.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Blade Runner, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.