Armur

Armur eða handleggur er útlimur á dýrum með tvo leggi (eins og manni).

Armurinn nær frá öxlinni niður til úlnliðarins. Olnboginn er liðamót í arminum sem gerir hann beygjanlegri. Armurinn skiptist í tvo hluta: upphandlegginn sem er tengdur öxlinni, og framhandlegginn sem nær frá olnboganum niður til úlnliðarins.

Armur
Vinstri armur fullorðins karlmanns.

Uppbygging

Bein

Upphandleggsbein er eitt þriggja langra beina armsins. Það er tengt herðablaðinu við öxlina og hinum tveimur löngu beinunum, sveifinni og ölninni, við olnbogann. Olnboginn er hjöruliðamót við enda upphandleggsbeinsins, sveifarinnar og alnarinnar. Torvelt er að brjóta upphansleggsbeinið.

Vöðvar

Vöðvar armsins skiptast í tvö lög: annað framanvert og hitt aftanvert. Vefurinn sem skilur lögin tvö að er tengd himnu upphandleggsbeinsins. Í hverju lagi eru vöðvarnir allir á sömu taug og gegna sama hlutverki.

Taugar

Vöðvahúðtaug (nervus musculocutaneus) er aðaltaug armsins og er framhald af armflækjunni (plexus brachialis). Sveifartaug (nervus radialis) er framhald af aftanverðum strengi vöðvahúðtaugar. Brot á sveifinni getur skemmt þessa taug.

Miðtaug (nervus medianus) rennur í gegnum framhandlegginn og stýrir fremri vöðvum hans. Sinaslíðursbólga er einkenni sem stafar af langvarandi þrýstingi á miðtaugina. Ölnartaug (nervus ulnaris) á uppruna sin í miðlægum strengi aðalarmtaugar og stýrir nákvæmum fingrahreyfingum.

Æðar

Armslagæð (arteria brachialis) er aðalæð armsins. Hún er framhald af handarkrikaslagæðinni (arteria axillaris). Innanarmsbláæð (vena basilica) og utanarmsbláæð (vena cephalica) eru aðalbláæðar armsins.

Armur   Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Armur UppbyggingArmurDýrLeggurLiðamótMaðurOlnbogiÖxlÚlnliður

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Michael JacksonEistneskaSnjóflóðin í Neskaupstað 1974VistarbandiðÍslensk sveitarfélög eftir flatarmáliLitla-HraunUnicodeLandnámabókSíðasta veiðiferðinIngólfur ArnarsonVigdís FinnbogadóttirSegulómunStofn (málfræði)AusturríkiBúddismiEgyptalandFákeppniEnskaAlmennt brotUmmálFimmundahringurinnMedinaM1997Gíneuflói27. marsGabonPlatonHarry S. TrumanLanga.NET-umhverfiðU2Norðurland vestraFaðir vorIBoðorðin tíuForsetningBreiðholtDanmörkWikipediaFullveldiMaría Júlía (skip)FjallagrösTorfbærJafndægurVerkbannÍsland í seinni heimsstyrjöldinniRio de JaneiroFlateyriSpænska veikinMalcolm XSjávarútvegur á ÍslandiFermingTjaldurBesta deild karlaBragfræðiRúmeníaÓlafur Ragnar GrímssonHeimdallurSteven SeagalVenus (reikistjarna)BerklarLína langsokkurNeysluhyggjaElliðaeyÞorsteinn Már BaldvinssonTrúarbrögðÍslenski þjóðbúningurinnSveitarfélagið StykkishólmurUngverjalandFranska byltinginBreiddargráðaHermann GunnarssonÍslendingabók (ættfræðigrunnur)LitáenSkytturnar þrjárParís🡆 More