Anhui: Hérað í Kína

Anhui (kínverska: 安徽; rómönskun: Ānhuī) er landlukt hérað í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína.

Höfuðborg héraðsins og jafnframt stærsta borg þess er Hefei. Héraðið er við vatnasvæði Jangtse fljótsins (Bláá) og Huaifljóts og liggur að héruðunum Jiangsu í austri, Zhejiang í suðaustri, Jiangxi í suðri, Hubei í suðvestri, Henan í norðvestri og Shandong í norðri.

Landakort af legu Anhui héraðs í austurhluta Kína.
Kort af legu Anhui héraðs í austurhluta Kína.

Anhui er þéttbýlt, með um 61 milljónir íbúa og er 8. fjölmennasta hérað Kína. Íbúar þess eru einkum Han Kínverjar. Í héraðinu eru 16 borgir. Þrjár stærstu eru Hefei, Wuhu og Anqing.

Nafnið „Anhui“ er dregið af nöfnum tveggja borga: Anqing og Huizhou (nú Huangshan-borg).

Hinn fagri Huangshan-fjallgarður („Gulufjöll“) í suðurhluta Anhui -héraðs nær yfir 154 ferkílómetra svæði og eru tindar hans 72 að tölu. Þrír helstu tindarnir heita Lian Hua Feng (1.864 metrar), Guang Ming Ding (1.840 metrar), og Tian Du Feng (1.829 metrar). Í skýjuðu veðri eru tindarnir umluktir leyndardómsfullri skýjaþoku en þegar sólin skín birtist fjallgarðurinn í allri sinni dýrð. Árið 1990 var Gulafjall sett á heimsminjaskrá UNESCO. Huangshan-fjallgarðurinn varð fyrirmynd hinum fljótandi Hallelújafjöllum í kvikmyndinni Avatar sem gerð var árið 2009. Í vísindaskáldskapnum voru Hallelújafjöll í Pandoru, lífvænlegs tungls gasplánetu í Alpha Century stjörnukerfinu.

Tenglar

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Anhui“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 11. janúar 2021.

Tilvísanir

Anhui: Hérað í Kína   Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

HefeiHenanHubeiHéruð KínaJangtseJiangsuJiangxiKínaKínverskaPinyinZhejiang

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Morð á ÍslandiJón Páll SigmarssonSeinni heimsstyrjöldinKári SölmundarsonJakobsstigarListi yfir þjóðvegi á ÍslandiIcesaveHéðinn SteingrímssonPálmi GunnarssonSumardagurinn fyrstiSæmundur fróði SigfússonEgill EðvarðssonLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisBotnssúlurDavíð OddssonHTMLHljómarMerik TadrosÓnæmiskerfiÚlfarsfellAladdín (kvikmynd frá 1992)Norræn goðafræðiTjaldurHarvey WeinsteinFjalla-EyvindurTyrkjarániðLýðræðiStari (fugl)MassachusettsAlþingiGoogleSMART-reglanHektariWolfgang Amadeus MozartHættir sagna í íslenskuForseti ÍslandsArnar Þór JónssonLatibærBenito MussoliniNúmeraplataGæsalappirEinar Þorsteinsson (f. 1978)SigrúnHarry PotterFyrsti maí1. maíDiego MaradonaAlþingiskosningar 2016EgyptalandHelga ÞórisdóttirSverrir Þór SverrissonSoffía JakobsdóttirEggert ÓlafssonVerðbréfGóaFimleikafélag HafnarfjarðarHannes Bjarnason (1971)Halla TómasdóttirÞingvellirHrossagaukurKristján EldjárnSvartfjallalandLjóðstafirMaðurLundiEivør PálsdóttirPóllandGormánuðurOrkumálastjóriFriðrik DórHallveig FróðadóttirSameinuðu þjóðirnarMorðin á SjöundáSauðárkrókur🡆 More