Kvikmynd Frá 2018 A Star Is Born

A Star Is Born er bandarísk rómantísk dramamynd frá árinu 2018 sem Bradley Cooper framleiddi og leikstýrði.

Myndin er frumraun hans sem leikstjóri. Handritið var samið af Cooper, Eric Roth og Will Fetters. Í aðalhlutverkum eru Cooper, Lady Gaga, Dave Chappelle, Andrew Dice Clay og Sam Elliott. Myndin fjallar um tónlistarmann (leikinn af Cooper) sem glímir við alkóhólisma og verður ástfanginn af yngri söngkonu (leikin af Gaga). Þetta er þriðja endurgerðin á myndinni frá 1937, en hinar endurgerðirnar eru frá 1954 og 1976. Kvikmyndatökur hófust á Coachella tónlistarhátíðinni í apríl 2017.

A Star Is Born
Kvikmynd Frá 2018 A Star Is Born
Veggspjald kvikmyndarinnar
LeikstjóriBradley Cooper
Handritshöfundur
  • Eric Roth
  • Bradley Cooper
  • Will Fetters
Byggt áSamnefndum kvikmyndum frá 1937, 1954 og 1976.
Framleiðandi
  • Bill Gerber
  • Jon Peters
  • Bradley Cooper
  • Todd Phillips
  • Lynette Howell Taylor
Leikarar
KvikmyndagerðMatthew Libatique
KlippingJay Cassidy
Fyrirtæki
  • Metro-Goldwyn-Mayer
  • Live Nation Productions
  • Gerber Pictures
  • Peters Entertainment
  • Joint Effort
DreifiaðiliWarner Bros. Pictures
Frumsýning
  • Ítalía 31. ágúst 2018 (Feneyjar)
  • Bandaríkin 5. október 2018 (Bandaríkin)
Lengd136 mínútur
LandBandaríkin
TungumálEnska
Ráðstöfunarfé36 milljónir bandaríkjadala
Heildartekjur436,2 milljónir bandaríkjadala

A Star Is Born var frumsýnd á 75. árlegu Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þann 31. ágúst 2018. Og var svo frumsýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum þann 5. október 2018 af Warner Bros. Pictures. Myndin sló í gegn og þénaði yfir 436 milljónir Bandaríkjadala um allan heim og hlaut lof fyrir frammistöðu Coopers, Gaga og Elliotts og leikstjórn Coopers, auk handrits, kvikmyndatöku og tónlistar. Myndin hlaut fjölda viðurkenninga, þar á meðal átta tilnefningar á 91. Óskarsverðlaunahátíðinni, meðal annars fyrir bestu mynd, besta leikara (Cooper), bestu leikkonu (Gaga) og besta leikara í aukahlutverki (Elliott); myndin vann verðlaun fyrir besta frumsamda lagið fyrir „Shallow“. Myndin hlaut einnig fimm tilnefningar á 76. Golden Globe-verðlaunahátíðinni, þar á meðal fyrir Best Motion Picture – Drama og vann verðlaun fyrir besta frumsamda lagið fyrir „Shallow“.

Hljómplata kvikmyndarinnar seldist í meira en sex milljónum eintaka um allan heim og vann fjögur Grammy-verðlaun af sjö tilnefningum, þar á meðal tilnefningar fyrir lag ársins tvö ár í röð. Aðalsmáskífa plötunnar, „Shallow“, er eitt mest selda lag allra tíma. Fyrir leik sinn og framlög til tónlistar myndarinnar varð Gaga fyrsta konan í sögunni til að vinna Óskarsverðlaun, Grammy-verðlaun, BAFTA-verðlaun og Golden Globe-verðlaun á einu ári.

Leikarar

  • Bradley Cooper sem Jackson "Jack" Maine, þekktur söngvari og alkóhólisti. Hann er leiðbeinandi og eiginmaður Ally.
  • Lady Gaga sem Ally Maine, söngkona og lagahöfundur sem Jack uppgötvar og verður síðar eiginkona hans.
  • Sam Elliott sem Bobby Maine, eldri hálfbróðir Jacks og umboðsmaður.
  • Rafi Gavron sem Rez Gavron, tónlistarframleiðandi og umboðsmaður Ally.
  • Andrew Dice Clay sem Lorenzo, faðir Ally.
  • Anthony Ramos sem Ramon, vinur Ally.
  • Dave Chappelle sem George "Noodles" Stone, fyrrum tónlistarmaður og besti vinur Jacks.
  • Drena De Niro sem Paulette Stone, eiginkona Noodles.
  • Greg Grunberg sem Phil, bílstjóri Jacks.

Heimildir

Fyrirmynd greinarinnar var „A Star Is Born (2018 film)“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 24. júní 2023.

Tilvísanir

Tags:

Kvikmynd Frá 2018 A Star Is Born LeikararKvikmynd Frá 2018 A Star Is Born HeimildirKvikmynd Frá 2018 A Star Is Born TilvísanirKvikmynd Frá 2018 A Star Is Born TenglarKvikmynd Frá 2018 A Star Is BornAlkóhólismiBradley CooperCoachellaDave ChappelleLady Gaga

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Knattspyrnudeild ÞróttarGeirfuglTómas A. TómassonIngólfur ArnarsonVestfirðirXHTMLMáfarEvrópusambandiðFreyjaSvíþjóðSeinni heimsstyrjöldinSilvía NóttHafnarfjörðurJóhannes Sveinsson KjarvalSankti PétursborgViðtengingarhátturHjaltlandseyjarEllen KristjánsdóttirÁslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkurinnTaívanHeyr, himna smiðurHryggdýrKartaflaEinar Þorsteinsson (f. 1978)BaldurKristján EldjárnJapanFáni FæreyjaStríðEldgosið við Fagradalsfjall 2021Listi yfir íslenska sjónvarpsþættiPáskarJón Jónsson (tónlistarmaður)SvartfuglarMaríuhöfn (Hálsnesi)Íslenska sauðkindinEiríkur blóðöxForsíðaBúdapestÁstralíaMorðin á SjöundáJóhannes Haukur JóhannessonSmokkfiskarSöngkeppni framhaldsskólannaÆgishjálmurMiltaGrikklandÁrni BjörnssonSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024VopnafjörðurLandsbankinnFrakklandUngmennafélagið AftureldingFriðrik DórVerg landsframleiðslaHarvey WeinsteinEldgosaannáll ÍslandsGormánuðurForsetakosningar á ÍslandiVafrakakaB-vítamínKírúndíHelförinLundiGoogleÓlafsfjörðurWikipediaHeimsmetabók GuinnessSýndareinkanetDimmuborgirSjávarföll🡆 More