Óskarsverðlaunin (enska: Academy Awards eða óformlega the Oscars) eru bandarísk kvikmyndaverðlaun veitt kvikmyndagerðarmönnum og öðrum sem starfa við kvikmyndir.
Verðlaunahátíðin er yfirleitt sú best kynnta og mest áberandi á Vesturlöndum, og verðlaunin af flestum talin þau eftirsóknarverðustu. Óskarsverðlaunin eru veitt af Bandarísku kvikmyndaakademíunni (Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum, og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni.
Óskarsverðlaunin | |
---|---|
Veitt fyrir | Framúrskarandi árangur í kvikmyndagerð |
Land | Bandaríkin |
Umsjón | Bandaríska kvikmyndaakademían |
Fyrst veitt | 16. maí 1929 |
Vefsíða | oscars |
Árið 2003 voru 5.816 meðlimir í akademíunni með kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum. Óskarsverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1929.
Fyrsta framlag Íslands til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátið var myndin Land og synir eftir Ágúst Guðmundsson frá árinu 1980 en það var í 53. sinn sem hátíðin var haldin.
Upphafsár | Verðlaunaflokkur |
---|---|
1927/28 | Besta kvikmynd |
1927/28 | Besti leikstjóri |
1927/28 | Besti leikari í aðalhlutverki |
1927/28 | Besta leikkona í aðalhlutverki |
1927/28 | Besta kvikmyndataka |
1927/28 | Besta heildarútlit/listræn stjórnun |
1927/28 | Besta handrit byggt á öðru verki |
1929/30 | Besta hljóð |
1930 | Besta stutta teiknimyndin |
1931/32 | Besta leikna stuttmyndin |
1934 | Besta klipping |
1934 | Besta frumsamda kvikmyndatónlistin |
1934 | Besta frumsamda lag |
1936 | Besti leikari í aukahlutverki |
1936 | Besta leikkona í aukahlutverki |
1939 | Bestu tæknibrellur |
1940 | Besta frumsamda handritið |
1941 | Besta stutta heimildarmyndin |
1943 | Besta heimildarmynd |
1947 | Besta alþjóðlega kvikmyndin |
1948 | Besta búningahönnun |
1981 | Besta förðun og hárgreiðsla |
2001 | Besta teiknimynd |
Eftirtaldir íslenskir aðilar eða myndir hafa fengið tilnefningu Bandarísku kvikmyndaakademíunnar til Óskarsverðlauna.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Óskarsverðlaunin, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.