Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir (1.
desember">1. desember 1945 - 12. október 1998) var alþingismaður og hjúkrunarfræðingur. Hún var ötul baráttukona fyrir réttindum fatlaðra og var formaður Þroskahjálpar um árabil. Hún var einnig varaformaður Alþýðuflokksins um tíma.
Ásta fæddist í Reykjavík og foreldrar hennar voru Þorsteinn Þorsteinsson, sjómaður og fisksali, og Ásdís Eyjólfsdóttir, skattendurskoðandi. Ásta átti tvö systkini, Víglund Þorsteinsson (1943-2018) framkvæmdastjóra BM-Vallá og Hafdísi Björgu Þorsteinsdóttur (f. 1955).
Ásta lauk hjúkrunarfræðiprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1968 og stundaði framhaldsnám í hjúkrunarstjórn við Nýja hjúkrunarskólann frá 1987-1988. og nám í skurðhjúkrun á Íslandi og í Danmörku.
Hún starfaði sem skurðhjúkrunarfræðingur á Borgarspítalanum frá 1968-1969, hjúkrunarfræðingur á geðdeild í Árósum árið 1971 og skurðhjúkrunarfræðingur í Árósum frá 1972-1980. Hún var hjúkrunarfræðingur við göngudeild Landspítalans frá 1980–1981, skurðhjúkrunarfræðingur við skurðdeild kvennadeildar Landspítalans frá 1982-1988 og var hjúkrunarframkvæmdastjóri á Landspítalannum frá 1988-1997.
Ásta var ötul baráttukona fyrir réttindum fatlaðra og var formaður Þroskahjálpar frá 1987-1995. Hún sat í fjölda opinberra nefnda um málefni fatlaðra og sat einnig í stjórnum norrænna hagsmunasamtaka fatlaðra.
Eiginmaður Ástu var Ástráður B. Hreiðarsson, læknir. Börn þeirra eru: Arnar Ástráðsson (f. 1967) læknir, Blær Ástríkur Stefán Ástuson Ástráðsson (1970-2021) táknmálsfræðingur og laganemi og Þorsteinn Hreiðar Ástráðsson (1975) læknir.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ásta B. Þorsteinsdóttir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.