Pop Festival 1970

Pop-Festival 1970 er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1970.

Á henni flytja ýmsir tónlistarmenn tólf lög. Platan er hljóðrituð í mónó. Hljóðritun: City of London Recording Studios, P.Y.E. Recording Studios, Ríkisútvarpið Reykjavík. Upptökumenn: Bernard Battimore, Allan Florence, Pétur Steingrímsson og Guðmundur R. Jónsson. Pressun: PYE. Útlit: Baldvin Halldórsson. Ljósmynd á forsíðu (skófir í Berserkjahrauni): Kolbeinn Grímsson. Aðrar ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson, Óli Páll, Kristinn Benediktsson o.fl. Prentun kápu: Litbrá hf. Prentun texta og myndaopnu: Hafnarprent hf.

Pop-Festival 1970
Pop Festival 1970
Pop Festival 1970
Bakhlið
T 01
FlytjandiÝmsir
Gefin út1970
StefnaDægurlög
ÚtgefandiTónaútgáfan

Lagalisti

  1. Komdu í kvöld ástin mín - Lag - texti: Howard Blaikley - Birgir Marinósson - Björgvin Halldórsson syngur
  2. Vonleysi - Lag - texti: Magnús Kjartansson - Þorsteinn Eggertsson - Hljómsveitin Júdas flytur
  3. Til hafsins - Lag - texti: Jim Webb - Ómar Ragnarsson - Guðmundur Haukur syngur
  4. Tilbrigði um rafmagnsorgel no 1. - Lag - texti: Magnús Eiríksson - Erlendur Svavarsson - Blues Company flytur
  5. Hamingjuást - Lag - texti: Þórir Baldursson - Þorsteinn Eggertsson - Heiðursmenn flytja
  6. Kanntu að læðast - Lag - texti: Frazier - Birgir Marinósson - Jónas R. Jónsson syngur
  7. Þú gafst mér svo mikla gleði - Lag - texti: B. Gordy, B. Holloway, Jobete, P. Holloway, F. Wilson - Ómar Ragnarsson - Dúmbó og Guðmundur Haukur flytja
  8. Heimurinn okkar - Lag - texti: Jim Webb - Jóhanna Erlingsdóttir - Engilbert Jensen syngur
  9. Ást við fyrstu sýn - Lag - texti: B. Cason, Glayden - Magnús Benediktsson - Bjarki Tryggvason syngur
  10. Mundu þá mig - Lag - texti: Becaul, Delanoe, Curtis - Ómar Ragnarsson - Pónik og Einar flytja
  11. Takmörk - Lag - texti: Wayne, Parson, Tompson - Þorsteinn Eggertsson - Rúnar Júlíusson syngur
  12. Sunny - Lag - texti: B. Hebb - Super Session flytur

Textabrot úr opnu plötuumslags

Pop Festival 1970 
Með útgáfu þessarar hljómplötu er brotið blað í hljómplötuútgáfu hérlendis. Hljómplatan Pop-Festival '70 er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, en hún er jafnframt fyrsta L.P. hljómplata Tónaútgáfunnar. Tilgangur þessarar hljómplötu er að kynna vandaða og fjölbreytta pop-hljómlist flutta af þekktum listamönnum, erlendum og innlendum, um 250 talsins. Fæstir geta gert sér í hugarlund hvað vandamálin eru mörg við útgáfu slíkrar hljómplötu. Undirbúningur og hljóðritun hefur tekið eitt ár. Siðan hafa nokkrar þessara hljómsveita hœtt störfum, en það ætti ekki að skaða neitt gildi hljómplötunnar.

Aðeins ein breyting hefur átt sér stað frá því sem upphaflega var œtlað. Hljómsveitinni Náttúru var œtlað eitt lag á plötunni, en af því gat ekki orðið, en þess í stað syngur Jónas R. Jónsson fyrrverandi söngvari Náttúru með aðstoð brezkrar hljómsveitar. Hljóðritanir fóru fram í London og Reykjavík og hafa þær tekizt með ágœtum, og er það ósk okkar og von, er að útgáfunni stöndum að okkur hafi tekizt að verða við óskum sem flestra.

Pop Festival 1970 
 
— Jón Ármannsson

Takmörk

Rúnar Júlíusson syngur við undirleik brezkrar hljómsveitar.

    Dagar koma og fara, mánuðir út fjara
    og lífið streymir burt frá þér
    og frelsið er takmarkað hjá þér.
    Nágranninn reynir að slá þér
    við með sitt hús eða bifreiðalús.
    Já, frelsið er takmarkað hjá þér.
    Frá allskyns siðavenium, predikunum og kenjum
    þú losnar aldrei, og á þér
    sést að frelsið er takmarkað hjá þér.
    Nágranninn reynir að slá þér
    við með sitt hús eða bifreiðalús.
    Já, frelsið er takmarkað hjá þér.
    Það sem eðlið manni býður bezt
    er bannað hérumbil flest
    takmörk og bannorð, íhaldssöm mannorð
    móta lífsviðhorfið fast hjá þér.
    Því er nú ver.
    Hversvegna ekki að sleppa
    af sér taumnum og keppa
    að frjálsu líferni hjá þér
    þá hlaupa áhyggjurnar frá þér
    nágranninn verður hissa á þér.
    Þú bara hlærð, og þú við honum slærð
    segir: Frelsið er takmarkað hjá þér.
    Já, frelsið er takmarkað hjá þér.
    Allskonar lífsvenjur há þér.
    Frelsið er takmarkað hjá þér.
    Afl í fjötrum þitt líf er.

Tags:

Baldvin HalldórssonHljómplataTónaútgáfan

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HöfðaborginDaniilÁsta SigurðardóttirLeikurAfleiða (stærðfræði)ÍslamSnæfellsjökull2008Þór (norræn goðafræði)Suður-AmeríkaBúnaðarbálkur (Eggert Ólafsson)AfríkaÞingvellirSameindRagnar Kjartansson (myndlistarmaður)Föll í íslenskuHættir sagna í íslenskuBamakóAdolf HitlerÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaÍslenskaÞýska Austur-AfríkaMarðarættDjöflaeyPáskadagurMúsíktilraunirInternet Movie DatabaseDrekkingarhylurKlara Ósk ElíasdóttirHagfræðiSykraHernám ÍslandsPSpánnMicrosoftLandnámabókKatrín JakobsdóttirHaraldur ÞorleifssonEyjaálfaÓlivínJafndægurVistkerfiEgilsstaðirMarshalláætlunin29. marsÞorgrímur ÞráinssonPermEiginnafnÞingkosningar í Bretlandi 2010Kaíró2000MetriMadrídEintalaBorgaraleg réttindiNýja-SjálandKristniGuðmundur FinnbogasonAgnes MagnúsdóttirLandvætturFiskurMalavíSpænska veikinFornnorrænaKolefniÓákveðið fornafnHöfuðborgarsvæðiðReifasveppirSveitarfélög ÍslandsFrançois WalthéryLionel MessiJarðskjálftar á ÍslandiNoregurÞingvallavatnGunnar HámundarsonSnjóflóðið í SúðavíkVíetnamKváradagur🡆 More