Myndbandsdómgæsla, skjádómgæsla, vídeódómgæsla eða VAR (enska: video assistant referee, stytting: VAR) er þegar dómarar notast við myndbönd af atvikum og heyrnartól og hljóðnema í hópíþróttum til að komast að niðurstöðu í dómum er varða leikinn.
Tilraunir með VAR voru gerðar einna fyrst í efstu deild Hollands, Eredivisie, árið 2014. Sepp Blatter fyrrum stjóri FIFA var mótfallinn VAR en arftaki hans Gianni Infantino sem tók við árið 2016 var þeim mun jákvæðari.
Myndbandsdómgæsla var fyrst notuð í efstu deild í Ástralíu árið 2017. Sama ár var hún notuð í Bundesliga í Þýskalandi, Serie A á Ítalíu, MLS í Bandaríkjunum og árið eftir í La Liga á Spáni. Á Englandi hefur hún verið notuð frá árinu 2017 í bikarkeppnum en ákveðið var að nota VAR í ensku úrvalsdeildinni fyrst tímabilið 2019-2020. Skjádómgæsla verður einnig innleidd í Meistaradeild Evrópu sama tímabil. .
VAR var notað á HM 2018 í Rússlandi í fyrsta sinn á heimsmeistararamóti.
Myndbandsdómgæsla var fyrst notuð í umspilsleik Íslands og Rúmeníu (fyrir EM 2021) í október 2020.
VAR er notað í þessum tilvikum:
Bæði aðaldómari leiks og VAR dómarar í skjáherbergi geta átt frumkvæði að samskiptum til að fara yfir atvik. Dómari getur þá farið yfir atvikið á skjá ef þess þarf. Hann gefur þá merki og teiknar eins konar ramma/skjá með höndum.
Haustið 2018 var samþykkt að; dómarar leikja geta nýtt sér myndbandsupptökur til lokaákvörðunar um dóma í leikjum sem eru í beinni sjónvarpsútsendingu sé slíkt í boði. Þá eru atvikin meðal annars: Hvort bolti fer yfir marklínu, hvort tími sé runninn út, óíþróttamannsleg atvik, hvort leikmanni skuli refsað og hvort skipting sé röng.
Í NBA hefur myndbandsdómgæsla verið notuð í lok leikja til að skera úr um vafaatvik. Aðallega í lok leikja. Hægt er að notast við takmarkaðan fjölda atvika.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Myndbandsdómgæsla, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.