Júlíbyltingin: Stjórnarbylting í Frakklandi í júlí 1830

Júlíbyltingin árið 1830 var önnur stjórnmálabylting Frakklands á eftir frönsku byltingunni árið 1789.

Í byltingunni var nýjum konungi, Loðvík Filippusi, komið til valda og nýtt stjórnarfyrirkomulag stofnað undir nafninu „júlíríkið“. Byltingin gerðist á þremur dögum, 27., 28. og 29. júlí, sem kallaðir eru „les Trois Glorieuses“ eða „dýrlegu dagarnir þrír“ á frönsku.

Júlíbyltingin: Stjórnarbylting í Frakklandi í júlí 1830
La liberté guidant le peuple (1830) eftir Eugène Delacroix lýsir júlíbyltingunni á táknrænan hátt.

Eftir langar og hatrammar deilur við ráðherra sína og þingmenn reyndi Karl 10. konungur að hrifsa til sín frekari völd með Saint-Cloud-tilskipuninni þann 25. júlí 1830. Viðbrögðin voru slík að æstur múgur breyttist fljótt í allsherjar byltingu lýðveldissinna. Parísarbúar reistu götuvígi og réðust að konungshernum í orrustu sem kostaði um 200 hermenn líf sitt og 800 uppreisnarmenn. Konungurinn og fjölskylda hans flúðu París. Frjálslyndir en konunghollir þingmenn tóku málin í sínar hendur og tókst að viðhalda þingbundnu konungsveldi með því að breyta um konungsætt.

Orléans-ætt, ættkvísl Búrbónaættar, tók því við af gömlu konungsættinni og hertoginn af Orléans var lýstur „konungur Frakka“, en ekki konungur Frakklands eins og forverar sínir, undir nafninu Loðvík Filippus.

Tilvísanir

Tags:

ByltingFrakklandFranska byltinginLoðvík Filippus

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

LaosKísillDymbilvikaErróÞýskalandÓeirðirnar á Austurvelli 1949George Patrick Leonard WalkerWikipediaHalldór Auðar SvanssonErpur EyvindarsonÓðinnSkoski þjóðarflokkurinnHrafna-Flóki VilgerðarsonAxlar-BjörnDoraemonRúnirNapóleon 3.1905Sigmundur Davíð GunnlaugssonKristján EldjárnSilfurbergÞingvallavatnSverrir Þór SverrissonRússlandKnattspyrnaVenus (reikistjarna)SturlungaöldHryggsúlaVíktor JanúkovytsjKríaGísla saga SúrssonarGlymurGunnar HámundarsonVorEpliWBoðhátturLjóðstafirHávamál29. marsMSkuldabréfEldgígurRóbert WessmanGylfaginningListi yfir landsnúmerDalvíkVöðviNoregurFriðrik ErlingssonJapanEinmánuðurRagnhildur GísladóttirPáskadagurRómStasiPablo EscobarFranska byltinginBalfour-yfirlýsinginFriggLögaðiliDrangajökullMichael JacksonVestmannaeyjagöngMaría Júlía (skip)Höskuldur Dala-KollssonAndri Lucas GuðjohnsenÍslenskir stjórnmálaflokkarMikligarður (aðgreining)KænugarðurTJarðskjálftar á ÍslandiHáskólinn í ReykjavíkÍslenskaAristóteles🡆 More