James Dean (8.
febrúar">8. febrúar 1931 – 30. september 1955) var bandarískur kvikmyndaleikari, sem öðlaðist heimsfrægð fyrir leik sinn í kvikmyndinni Rebel Without a Cause um miðjan sjötta áratuginn. Hann varð fyrirmynd ungmenna á Vesturlöndum. Dean lést með sviplegum hætti í bílslysi árið 1955.
James Dean keypti bílinn (Porsche 550 Spyder) sem hann lést í þann 21. september árið 1955 og kallaði hann "Little Bastard." Margir af vinum og vandamönnum hans lýstu því hvernig þau fengu einhverja ónotatilfinningu af því að horfa á bílinn og reyndu því að fá hann ofan af því að aka honum. Á meðal þeirra var stórleikarinn Alec Guinness sem sagði að "ef hann færi í þennan bíl á hann eftir að deyja eftir viku." Sjö dögum síðar lést Dean í alvarlegu bílslysi.
Brakið og varahlutir úr bílnum voru seldir til ýmissa áhugasamra safnara, en lentu margir af nýju eigundunum og fólk sem kom nálægt brakinu í slysum og talið er að bílinn eigi sök á dauða að minnsta kosti þriggja annarra. Þar fyrir utan hafa orðið mörg óútskýranleg slys og áttu þau sér öll stað á aðeins fimm ára fresti. Að lokum hvarf bílinn á dularfullan hátt árið 1960. Telja því margir að hér hafi verið bölvun á ferð.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article James Dean, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.