Gulvestungar

Gulvestungar (franska: Gilets jaunes) eru frönsk mótmælahreyfing sem hafa reglulega mótmælt stjórnarstefnum Emmanuels Macron Frakklandsforseta frá því í október árið 2018.

Mótmælin eru kennd við gul endurskinsvesti sem mótmælendurnir klæðast, en samkvæmt frönskum lögum verða slík vesti að vera í öllum bílum. Mótmælaalda gulu vestanna hefur breiðst út til nokkurra nágrannaríkja Frakklands, meðal annars til Belgíu.

Gulvestungar
Mótmælasamkoma gulvestunga í Vesoul í austurhluta Frakklands.

Í upphafi voru mótmælin gegn nýjum eldsneytisskatti sem stjórn Macrons hugðist setja en fljótlega tóku mótmælin á sig mun breiðari mynd og hafa almennt beinst gegn háum kostnaði lifnaðar, hárri skattbyrði verkastétta og lágum launum í Frakklandi. Mótmælahreyfingin er ómiðstýrð og rekur uppruna sinn til samfélagsmiðla eins og Facebook. Þar sem hreyfingin lýtur engri ákveðinni forystu er stefna hennar óljós og kröfur hennar mjög á reiki. Í sumum tilfellum hafa mótmælendurnir reynst ósammála innbyrðis um markmið hreyfingarinnar. Andstæðingar Macrons bæði lengst til hægri, þar á meðal Marine Le Pen, og lengst til vinstri, þar á meðal Jean-Luc Mélenchon, hafa lýst yfir stuðningi við hreyfinguna.

Mótmælin hafa leitt til þess að hætt var við eldsneytisskattinn sem var kveikjan að hreyfingunni. Í ávarpi til þjóðarinnar lofaði Macron forseti jafnframt 100 evra hækkun á lágmarkslaunum og að fallið yrði frá áætlunum um aukna skattlagningu á lægstu tekjuhópa landsins. Mótmælin hafa þó haldið áfram.

Tilvísanir

Tags:

BelgíaEmmanuel MacronFrakklandFranska

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ÞorskastríðinStöð 2FornafnEgill Skalla-GrímssonHeyr, himna smiðurTékklandKleppsspítaliFalklandseyjarHelgafellssveitBítlarnirEmomali RahmonUppstigningardagurMaðurDvergreikistjarnaPersóna (málfræði)COVID-19ÓðinnÍslensk mannanöfn eftir notkun/Einn nafnhafiMoldóvaGullGíraffiGarðaríkiÚranusSameindSýslur ÍslandsBergþórHeiðniBorgarbyggðÍslenskaJónas HallgrímssonMerkúr (reikistjarna)Aron PálmarssonListi yfir landsnúmerSjálfbær þróunListi yfir íslenska sjónvarpsþættiFöll í íslenskuRagnar loðbrókFjölnotendanetleikurSkírdagurGunnar HelgasonSovétríkinNúmeraplataSíleRíkiListÍslandsklukkanFjármálKínaVestmannaeyjarSkotlandAfturbeygt fornafnAtlantshafsbandalagiðKarfiJóhann SvarfdælingurLiðfætluættHúsavíkBríet (söngkona)Suður-AmeríkaSprengjuhöllinLissabonÞórshöfn (Færeyjum)Sundlaugar og laugar á ÍslandiStóridómurTímabeltiTaugakerfiðJón Jónsson (tónlistarmaður)Dymbilvika1568GeirvartaMarðarættIdi AminSteinþór SigurðssonLýsingarhátturListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaHeiðlóa🡆 More