Gleðibankinn: Framlag Íslands í Eurovision 1986

„Gleðibankinn“ er íslenskt dægurlag sem söngflokkurinn ICY flutti í Eurovision árið 1986 þegar Ísland tók þátt í keppninni í fyrsta skipti.

„Gleðibankinn“
Lag eftir ICY
Lengd3:03
LagahöfundurMagnús Eiríksson
TextahöfundurMagnús Eiríksson
Tímaröð í Eurovision
„Hægt og hljótt“ (1987) ►

Söngvakeppni Sjónvarpsins var fyrst haldin 7. mars 1981, fimm árum síðar tók Ísland fyrst þátt í evrópsku keppninni, þann 15. mars árið 1986 þegar lag Magnúsar Eiríkssonar, „Gleðibankinn“ í flutningi Pálma Gunnarssonar bar sigur úr býtum og varð í kjölfarið framlag Íslands í Eurovison en keppnin var haldin í Bergen í Noregi þann 3. maí 1986.

Eftir að lagið vann Söngvakeppnina hér heima tók það talsverðum breytingum. Það var fært í diskóbúning, útsetningu lagsins breytt og tveimur flytjendum bætt við, þeim Helgu Möller og Eiríki Haukssyni og fluttu þau lagið ásamt Pálma í keppninni í Bergen og kom söngflokkurinn fram undir heitinu ICY. Breytingarnar voru gerðar án samráðs við Magnús Eiríksson höfund lagsins og fór hann ekki í grafgötur með það á sínum tíma að hann væri ósáttur við þær.

Íslendingar höfðu miklar væntingar til lagsins í aðdraganda keppninnar og til dæmis var því haldið fram á forsíðu Dagblaðsins Vísis nokkrum dögum fyrir keppni að „Gleðibankinn“ nyti mikilla vinsælda og efstu sætin í söngvakeppninni væru í sjónmáli. Óhætt er að segja að það verið ýmsum talsverð vonbrigði þegar í ljós kom að lagið hafnaði í 16. sæti í keppninni.

Tilvísanir

Tags:

EurovisionICYÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

VatnsdeigSpurnarfornafnSýndareinkanetRonja ræningjadóttirAndlagBretlandTahítíKnattspyrnufélagið FramSvartidauðiLanganesbyggðTitanicMike JohnsonJava (forritunarmál)Listi yfir morð á Íslandi frá 2000NúmeraplataSíderArnar Þór JónssonFæreyjarPálmi GunnarssonGeitháls24. aprílGerður KristnýEldfellGrikklandBankahrunið á ÍslandiKvennaskólinn í ReykjavíkPierre-Simon LaplaceBaldur Már ArngrímssonÓðinnFornafnStefán Ólafsson (f. 1619)Mannshvörf á ÍslandiVatnajökullTúrbanliljaRóteindHjartaDiskurLangisjórAnnað ráðuneyti Bjarna BenediktssonarGoðafossVísir (dagblað)VífilsstaðavatnErpur EyvindarsonAlfræðiritFjárhættuspilGunnar HelgasonHólmavíkÍslensk krónaÓlafur Ragnar GrímssonÍsraelNafnhátturSaga ÍslandsNafnháttarmerkiSkátahreyfinginHollenskaSkjaldbreiðurSúmersk trúarbrögðSvíþjóðRómverskir tölustafirLandráðOfurpaurBerserkjasveppurIMovieHugmyndEnskaKviðdómurÍslenskir stjórnmálaflokkarTíðbeyging sagnaKennitalaOkkarínaBostonDróniKristnitakan á ÍslandiGossip Girl (1. þáttaröð)Franska byltinginSporger ferill🡆 More