Einkaleyfi er leyfi sem er veitt einum aðila á tæknilegum uppfinningum sem leysa tiltekið vandamál.
Uppfinningin þarf að vera alveg ný og óþekkt þegar sótt er um, þ.e. ekki má vera búið að kynna hana almenningi í ræðu eða riti, en ekki er hægt að fá einkaleyfi á óhlutbundnum uppfinningum eins og viðskiptaaðferðum og óútfærðum hugmyndum. Með einkaleyfinu er hægt að hindra aðra í að nýta uppfinninguna í atvinnuskyni í ákveðinn tíma, að hámarki 20 ár. Sérstakar reglur gilda um lyf og plöntuvarnarefni sem unnt er að vernda að hámarki 25 ár. Hugverkastofan veitir einkaleyfi á Íslandi.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Einkaleyfi, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.