Draugur (vofa eða afturganga) er yfirnáttúruleg vera í þjóðtrú og goðsögnum.
Á Norðurlöndum átti draugur upprunalega við uppvakning sem risið hafði úr gröf sinni, oftar en ekki vakinn upp með fjölkynngi til að sinna illviljuðum erindagjörðum sem galdramaðurinn fól honum í té. Það var almennt álitið að draugar gætu einnig risið upp úr grafarhaug sínum af sjálfsdáðum og oft voru sérstakar galdrarúnir ristar í steina við grafir stríðsmanna til að koma í veg fyrir að þeir gengju aftur, líkt og rúnasteinnin í Kalleby í Svíþjóð gefur til kynna.
Í þjóðtrú er því almennt trúað að draugar séu sálir látins fólks sem fast milli heima lifenda og dauðra af ýmsum orsökum. Þegar fólk deyi geti til dæmis komið fyrir að vinir og fjölskylda syrgi viðkomandi svo mikið að það vill ekki leyfa manneskjunni að fara og veldur því að látið fólk sitji fast á milli heima.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Draugur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.