Copa Del Rey

Copa del Rey eða spænski konungsbikarinn er elsta knattspyrnukeppni Spánar sem enn er haldin, stofnuð árið 1903 á grunni Krýningarbikarsins sem keppt var um árið áður.

Fram að stofnun spænsku deildarkeppninnar árið 1928 var Copa del Rey helsta knattspyrnukeppni Spánar. FC Barcelona er sigursælasta félagið í sögu keppninnar með 31 titil, Athletic Bilbao, sem eru ríkjandi meistarar (2024) hafa unnið 24 sinnum og Real Madrid 20 sinnum. Sigurvegarar í Copa del Rey fá þátttökurétt í Evrópudeild UEFA.

Saga og skipulag

Krýningarathöfn Alfons 13. Spánarkonungs árið 1902 varð hvati til þess að halda knattspyrnukeppni með félagsliðum víðs vegar að frá Spáni. Fimm lið tóku þátt og fór úrvalslið skipað leikmönnum frá Baskalandi með sigur af hólmi. Liðsmennirnir tengdust flestir Athletic Bilbao, sem lítur enn í dag svo á að um fullgildan bikarmeistaratitil hafi verið að ræða. Spænska knattspyrnusambandið er ekki á sama máli, heldur álítur að fyrst hafi verið keppt um Konungsbikarinn árið 1903, þegar Athletic Bilbao fór einnig með sigur af hólmi.

Keppnin hefur gengið undir ýmsum nöfnum í gegnum tíðina. Fyrstu tvö árin var hún kennd við borgarstjórnina í Madríd. Frá 1905-32 bar hún nafn Alfons 13. og í tíð spænska lýðveldisins nefndist hún Forsetabikarinn. Eftir valdatöku Fransisco Franco nefndist hún Copa del Generalísimo, en frá lokum einræðisins árið 1975 hefur núverandi nafn verið notað.

Athletic Bilbao varð árið 1904 eina liðið í sögunni til að verða meistari án þess að keppa í úrslitaleik, þegar Espanyol mætti ekki til leiks í úrslitum. Árin 1910 og 1913 kom upp klofningur í knattspyrnusambandinu sem varð til þess að tvær keppnir voru haldnar í samkeppni hvor við aðra. Leiktíðina 1937-38 héldu félög á svæði lýðveldissinna í spænsku borgarastyrjöldinni sína eigin keppni, Copa de la España Libre, sem lauk með sigri Levante FC. Stuðningsmenn félagsins líta á þetta sem fullgildan bikarmeistaratitil, sinn eina í sögunni, en knattspyrnuyfirvöld hafa ekki fallist á þá túlkun.

Áður en La Liga kom til sögunnar var litið á sigurvegara bikarkeppninnar sem Spánarmeistara. Forkeppnir voru haldar í einstökum héröðum með ólíku keppnisfyrirkomulagi frá ári til árs, þar sem jafnvel var keppt í riðlum. Til ársins 1990 fengu varalið félaga að taka þátt í keppninni. Um árabil var fjöldi kappliða bundinn við 83, en frá 2019 hafa lið úr fimmta þrepi spænsku deildarkeppninnar verið meðal þátttökuliða og keppnisliðin því verið 125.

Titlar eftir félögum

Félag Titlar Ár
F.C. Barcelona 31 1909–10, 1911–12, 1912–13, 1919–20, 1921–22, 1924–25, 1925–26, 1927–28, 1941–42, 1950–51, 1951–52, 1952–53, 1956–57, 1958–59, 1962–63, 1967–68, 1970–71, 1977–78, 1980–81, 1982–83, 1987–88, 1989–90, 1996–97, 1997–98, 2008–09, 2011–12, 2014–15, 2015–16, 2016–17, 2017–18, 2020-21
Athletic Bilbao 24 1903, 1904, 1910, 1911, 1914, 1915, 1916, 1921, 1923, 1930, 1931, 1932, 1933, 1943, 1944, 1944–45, 1949–50, 1955, 1956, 1958, 1969, 1972–73, 1983–84, 2024
Real Madrid 20 1905, 1906, 1907, 1908, 1917, 1934, 1936, 1946, 1947, 1961–62, 1969–70, 1973–74, 1974–75, 1979–80, 1981–82, 1988–89, 1992–93, 2010–11, 2013–14, 2022-23
Atlético Madrid 10 1959–60, 1960–61, 1964–65, 1971–72, 1975–76. 1984–85, 1990–91, 1991–92, 1995–96, 2012–13
Valencia CF 9 1941, 1948-49, 1954, 1966–67, 1978–79, 1998–99, 2007–08, 2018–19, 2021-2022
Real Zaragoza 6 1963–64, 1965–66, 1985–86, 1993–94, 2000–01, 2003–04
Sevilla FC 5 1935, 1939, 1947–48, 2006–07, 2009–10
Espanyol 4 1929, 1940, 1999–2000, 2005–06
Real Unión 4 1913, 1918, 1924, 1927
Real Betis 3 1976–77, 2004–05, 2021-22
Real Sociedad 3 1909, 1986–87, 2019-20
Deportivo de La Coruña 2 1994–95, 2001–2002
Arenas Club de Getxo 1 1919
RCD Mallorca 1 2002–03

Tags:

Athletic BilbaoEvrópudeild UEFAFC BarcelonaKrýningarbikarinn 1902La LigaReal MadridSpánn

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Bjarkey GunnarsdóttirVopnafjarðarhreppurGarðar Thor CortesMarie AntoinetteLandvætturHermann HreiðarssonGaldurTröllaskagiFelix Bergssonc1358ÍslandBaldurForsetakosningar á Íslandi 2020Fáni SvartfjallalandsGylfi Þór SigurðssonUppköstFornaldarsögurNeskaupstaðurRauðisandurSveitarfélagið ÁrborgKötturHalldór LaxnessVigdís FinnbogadóttirHarry S. TrumanBaldur ÞórhallssonRagnar JónassonKirkjugoðaveldiJóhannes Haukur JóhannessonLýðstjórnarlýðveldið KongóAriel HenryHarry PotterEgyptalandEldgosaannáll ÍslandsLundiMosfellsbærEl NiñoKnattspyrnufélagið VíkingurÍslenski fáninnGrindavíkWayback MachinePúðursykurListi yfir íslensk kvikmyndahúsÍsafjörðurKnattspyrnufélagið ValurUngverjalandBónusHrafninn flýgurÝlirMadeiraeyjarKnattspyrnufélagið FramBloggHallgerður HöskuldsdóttirSjávarföllÞjóðleikhúsiðE-efniCharles de GaulleSagan af DimmalimmLaufey Lín JónsdóttirBríet HéðinsdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016MaríuerlaMatthías JohannessenKríaSpánnReykjavíkHandknattleiksfélag KópavogsÞingvallavatnSauðanes (N-Þingeyjarsýslu)Willum Þór ÞórssonSeljalandsfossEddukvæðiHæstiréttur ÍslandsSagnorðSnæfellsjökullReynir Örn LeóssonÓlafsvík🡆 More